Skírnir - 01.12.1913, Side 86
374 Ritfregnir.
Stefáns haldist óbreytt hjá öllum sem framvegis rita um grasafræði
á íslenzka tungu.
Nú hefir St. St. gefið út mjög snotra kenslubók í grasafræði
íyrir skóla vora. Að svo miklu leyti sem jeg get sóð við lauslegt
yfirlit eru sömu kostir við hana og Flóru: ljós frásögn, fagurt við-
feldið mál og ágæt fræðiorð. Annars er bók þessi að sjálfsögðu
■miklu skemtilegri. Hver skynsamur alþyðumaður getur lesið hana
sór til fróðleiks og skemtunar kennaralaust. Mér finst hún væri
bezta gjöf handa hverju bókhneigðu athugulu barni. Það er ekki
einskis virði ef unglingar vorir lærðu dálítið ágrip af grasafræði, því
fátt skerpir betur athyglina eða opnar betur augun fyrir undra-
heimi náttúrúrvísindanna, en það er þó skilyrðið að bókin só ekki að
eins lesin, heldur jurtirnar sjálfar athugaðar að sumrinu. Það ætti
ekki heldur að vera alveg þýðingarlaust fyrir alþyðu vora, sem að
miklu leyti lifir af jarðrækt, að vita deili á lífi og lifnaðarháttum
jurtanna, að geta þekt hver gróður er á engjum þeirra og túnum.
Bók þessi er eflaust samin sem ketislubók fyrir skólana, en hún er
í mínnm augum nytsöm og nauðsynleg alþýðubók.
Eintt ga.lli þykir mór tilfinnanlegur á bók þessari, einkum
ef hún er skoðuð sem alþýðubók. Það vantar ítarlegan inngang
þar sem lýst væri hversu læra skyldi grasafræði, athuga jurtir,
safna þeim, fergja þær o. s. frv. í Flóru var kafli um þetta, en
nú er hún uppseld. Unglinguriun. sem les bókina kennaralaust,
hefði átt að fá nákvæma leiðbeining um notkun hennar, annars
heldur hann að alt sé innifalið í því að lesa bókina og athuga
tnyndirnar, en sú kuunátta kemur auðvitað ekki að tilætluðum notum.
Bók þessi er að nokkru leyti dönsk. Hún er sniðin eftir danskri
kenslubók eftir Eug. Warming og myndir að mestu teknar úr henni.
f>að er hart að geta ekki samið sjálfstæðar bækur vegna þess að
myndtr þarf ætíð að fá að láni. Sú er bót í máli hvað þessa bók
snertir, að Eug. Warming er afburðamaður í sitini greiu og bækur
hans svo vel samdar, að aðrár gerast ekki betri.
En eitt er það sem Stefán á stóra skömm skilið fyrir: að hafa
ekki komið bók þessari út fyrir löngú síðan.
G. H.
Önnur rit, er Skírni hafa borist.
Bjarni Þorsteinsson : Viðbætir við hirta íslenzku sálmasöugsbók með
fjórum röddum. Rvík 1912.