Skírnir - 01.12.1913, Síða 96
384
ÍJtJendar fréttir.
sæti í, skal tiltaka aðalatriðin í væntanlegri stjórnarskrá landsins.
Hver verða skuli fursti Albaulu er ekki fastákveðið enn.
Uppreisn í Kína. Það hefir ekki gengið sem bezt að kalda
uppi friði í Kína síðan stjórnarbyltingin varð þar og ríkið var gert
að lýðveldi. Nú í sumar hafa verið sífeldar óeirðir og æsingar í
suðurhluta ríkisins, en þar hefir Sun-Yat-Sen haft mikil áhrif og
mikið fylgi frá upphafi, en Juan Shi-Kai forseti í norðurhlutanum.
Sagt er nú að síðustu, að uppreisnin só að miklu leyti bæld niður
af stjórnarhernum, og nýlega tók hann Nankingborg, sem verið
hafði ein af höfuðstöðvum uppreisnarliðsins, en um allan Jangtseki-
angdalinn hefir stríðið geisað í sumar Upreisnarmenn hafa altaf
farið halloka, og leiðtogi þeirra, Sun-Yat-Sen, flúði úr landi í sumar
og hefir síðan setið í Japan. Juan-Shi Kai forseti er talinn mjög
duglegur maður, en harðdrægur og brögðóttur, og svo er að keyra
sem allflestir hafi mesta trú á honum til þess að koma festu á hið
nýja fyrirkomulag ríkismálefnanna og standa fyrir þeim breyting-
um, sem fyrirhugaðar eru þar á svo mörgum svæðum og sumar
eru þegar komnar nokkuð á veg, en aðrar í byrjun. Æsingarnar
gegn forsetauum hafa meðal annars stafað af því, að hann hefir
tekið mjög stórt r/kislán, sem stórveldi Norðurálfunnar hafa útveg-
að og verja á til þess að koma fram ýmsum hinum fyrirhuguðu
breytingum þar eystra. Lántakan mætti mikilli mótspyrnu, bæði í
þinginu og jafvel líka innan stjórnarráðsins, en forsetinn kom henni
í gegn með harðfylgi. Með stuðningi af þessu fjármagni hefir hann
nú bælt niður uppreisnina og getur svo haldið fram þeirri stefnu,
sem hann hefir tekið. Hann hefir fengið sór enskan mann fyrir
ráðunaut í fjármálum og framkvæmdamálum. En þr.itt fyrir þetta
er hann sagður þjóðlegur í hugsunarhætti og íhaldssamur að 3umu
leyti. Ollum kemur saman um, að mikið só í hann varið.
Bandaríkin og Mexíkó. Það hefir legið við ófriði milli
Bandaríkjanna og Mexíkó. Bandaríkjaforseti vill ekki viðurkenna
að Huerta, sem um hríð hefir gegut forsetaembættinu í Mexíkó, só
löglega að völdum kominn, og heimtar, að hanu vxki. Orsökin er,
að Bandamenn, sem búsettir hafa verið í Mexikó og eiga þar stór-
fó í ýmsum fyrirtækjum, hafa flúið þaðan í stórhópum nú á síðustu
styrjaldatímunum og látið þar eftir eignir sínar eins og í hers hönd-
um. Hafa þeir kært þetta fyrir Bandaríkjaforseta, og hann þykist
ekki geta látið það afskiftalaust. Fulltrúa hefir hann sent suður,
er John Lind heitir, og er nú verið að semja um þessi mál, en
ósóð enn, hvernig þeim muni ljúka. Þ. G.