Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 43

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 43
45 menn allir. enn gozit oe skip ílokin keyrdi upp hvervetna«; * *) eitt- hvað hefir verið af enskum hér þá. Sama sumar sendi hirðstjórinn, sem þá var Arníinnur Þorsteinsson, (líklega i umboði Arna biskups Olafssonar, sem þá var hirðstjóri, en fór utan það sumar), lögmenn og lögréttumenn Eiríki konungi hyllingarbréf, samið á alþingi 1. júlí, en tjá honum jafnframt út af forboðsbréfi hans um að kaups- laga-við nokkura útlenzka menn, að eigi hafi þá langa tíma komið þau sex skip af Noregi árlega, sem réttarbætur gjöra ráð fyrir að koma skyldi, og hafi konungurinn og landið tekið grófan skaða af því; segja þeir að þeir hafi því upp á guðs náð og kongsins traust orðið að kaupslaga við utlenzka menn, sem með friði hafi farið, en látið refsa duggurum þeim og flskurum, sem reyfað liafi og ófrið gjört; báðu þeir hann nú skrifa þeim næst hversu þeir mættu bezt- an frið hafa.2) En svarið kom víst aldrei og skyldan um skipin frá Noregi varð ekki uppfylt. — Því að ekki var svo vel að verzlunin væri opin við norðmenn eða aðra þegna konungs ; hún var lokuð öllum nema þeim, sem keyptu leyfi dýru verði, og hár tollur (sekkja- gjald) á innfluttum afurðum frá Islaiidi. Norðmönnum heflr því litist það óaðgengilegt og lítið arðvænlegt að reka verzlun hér. — Varð þessi verzlunar»pólitík« því öllum hlutaðeigöndum til hins mesta ógagns, og stórkostlegs skaðræðis landi voru og lýð, sem vit- anlega varð verst úti fyrir þessar hörðu og heimskulegu ráðstafanir. Góðir menn og löghlýðnir hafa forðast að eiga hin ólöglegu mök við oss, en reyfarar og ruslfók reynt að færa sér í nyt neyð vora og varnarleysi. Þegar Arnfinnur hirðstjóri kom af alþingi þessu var það eitt af hans fyrstu verkum að veita tveim kaupmönnum útlenzkum, sem þá voru komnir i Hafnarfjörð, leyfi til að »kaupa og selja í Vestmanna- eyjum og um land alt hvar er þeir vilja« og »hafa skip sitt til út- róðrar þar er þeir vilja í landið«3). — En Arnfinnur fór ekki með hirðstjóravaldið næsta sumar. Hingað var sendur til landsins sama sumarið Hannes nokkur Pálsson, danskur rnaður, prestur, kapellan og þénari Eiríks konungs, svo sem sendiboði og cftirlitsmaður af kongsins hált'u, sennilega að undirlagi Jóns Hóla-biskups Tófasonar, sem líka var danskur. Var hann hér um veturinn. Þennan sama vetur tóku 6 enskir kaupmenn það fyrir, að hafa vetursetu og verzlun í Vestmannaeyjum, og settu þar upp hús »utan nokkurs mans leyfi«. *) Isl. ann , 293. *) isl. fornbrs. IV. b., bls. 268. *) ísl. fornbrs. IV. b., bls. 269-70.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.