Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 52

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 52
54 mennina. ad þier giorid þeim eeki jslangur eda omak upp frá því sem uaukumerki er upp sett nema þeir vilie sialfer lofa. allt þeirra riettarfar eykzt at helminge sem hier erv uanvirter med ordum eda uerkvm«. Kaupmennirnir eru síðan ámintir um að viðhafa rétt mál og engin svik í sínum kaupskap o. s. frv. En klykt er út með klausu þessari: »Fordumst nu godir menn allann vondskap ok vielar. uppsteyt eda oroa. helldur sie huer annars uin. ad uielalausu ok haulldum suo grid ok gamlann landzins sid og sitied j gudz frid«. Þetta var nú vel meint og vel mælt, og betur að ekki hefði út af brugðið, svo sem þó oft mun hafa átt sér stað, eins og dæmi hafa verið sýnd upp á hér að framan og annálar benda til að orðið hafi enn á næstu öld, svo sem hér mun greint verða. Svo segir sira Jón Egilsson í Biskupaannálum sínum1): »A dögum biskup Stefánar (Jónssonar) var slag í Yestmannaeyjum með Engelskum og Síðumönnum, þar féllu xiiij Éngelskir, og einn prestur af fslenzk- um, er síra Jón hét, og var kallaður smjörnefur; hann hélt Skarð í Meðallandi; þá var datum 1514«. Enn segir Jón Gizurarson í ritgjörð sinni um siðaskiftatímana2): »Gizur (Sigvaldason langalífs og Þuríðar Einarsdóttur, bróður Björns - ríka) var í hel sleginn í Vestmannaeyjum af Engelskum, í upphlaupi þar skeði þeirra í milli. Þeir voru þar allir Sigvaldasynir (Gunnar og Einar faðir Gizurar biskups), með fleirum öðrum hraustum mönn- um, ekki þó utan tvær áttærings skipshafnir, i móti mönnum af xiii engelskum skipum; létu þeir Ensku mest gánga örvadrif af hand- bogutn, sem í þann tíð var tiðast. íslenzkir gengu fram með grjót og sín þungu vopn, þar féllu tveir menn aðrir en Gizur, en x Eng- elskir, svo skildust þeir að skiptum«. Það verður ekki með vissu séð hvort hér er átt við sama bardagann í báðum þessum frásögn- um, en líkindi eru þó til þess að svo sé. Er það fyrri frásögnin, sem Sigurður hreppstjóri á við hér að framan; en þar sem hann ætlar að mannvirki þau, sem hann getur um, kunni að vera dysjar frá þessum bardaga 1514, þá mun það naumast geta verið svo, eins og líka bent hefir verið til áður, að því er snertir mannvirki þau hin síðustu 2, sem hann getur um. Sigurður sýndi mér sjálfur öll þessi mannvirki, og hefi eg þá skrifað þetta um hið syðsta þeirra — hið fyrsta er Sigurður nefnir hér að framan: »All-löngum spöl sunnar í hrauninu (en haugurinn, sem er fyrir utan og sunnan Herj- ‘) Safn I. b., bls. 45. *) Safn I. b., bls. 674.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.