Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 53
55
jólfsdal) er lík upphækkun, en stærri, og sunnanundir henni er dá-
lítið, uppblásið svæði; er i því og upphækkuninni aðflutt grjót. —
Austantil við upphækkun þessa er og önnur slík uppblásin grjót-
dreif með aðfluttu grjóti. Engar hleðsluleifar sjást hér, og eru helzt
líkur til að hér hafl verið dysjar, sem blásið hafl upp að miklu
leyti«. — Dálítið járnstykki fann eg þarna, mjög gagntekið af
ryði.1)
Það lítur jafnvel út fyrir að síra Brynjólfur eigi við þessar
dysjar í sóknarlýsingu sinni, þar sem hann kemst svo að orði:
»Suður- og framundan Herjólfsdal eru með nokkuru millibili,
jarðhólar tveir, æði stórir ummáls, er kallaðir hafa verið »dysjar« ;
er það sögn manna, að dysjar þessar eigi að vera frá þeim tíma er
»slag varð með Engelskum og Síðumonnum« 1514, eins og segir í
Biskupa-annálum Jóns Egilssonar; hafi Enskir, er þar féllu, sem í
annálunum segir að hafi verið 14, átt að vera dysjaðir í hinni stærri
dysinni, en Islendingar, sem færri hefðu fallið (að vísu er ei nefnd-
ur nema einn, sem sé síra Jón Smjörnefur), verið dysjaðir í hinni
minni. Fyrir fáum árum síðan hefir verið graflð í báðar þessar svo
kölluðu dysjar, en engar menjar fundust, hvorki af mönnum né öðr-
um munum«. — En það mun ekki öldungis víst að síra Brynjólfur
eigi við þessar upphækkanir suður í hrauninu, sem Sigurður nefnir
í sambandi við bardagann 1514. Virðist mér eins líklegt að hann
eigi við mannvirki tvö, að því er sýnist, sem eru vestar og nær
Kaplagjótu, lágar upphækkanir, er gætu litið út fyrir að vera út-
grafnar og uppblásnar dysjar frá miðöldunum. Sennilega hafa þeir
Englendingar, er féllu í bardaganum 1514 ekki verið jarðaðir í
kirkjugarði, heldur dysjaðir í óvígðri mold, eins og siður var til hér
á landi um þess háttar menn útlenda. En íslendingar þeir, er mistu
lífíð í viðureign sinni við þá, hafa sjálfsagt verið grafnir í kirkju-
garði á heiðarlegan hátt.
Englendingar héldu áfram verzlun sinni á Vestmannaeyjum
langt fram á 16. öld, unz danir fengu yflrhöndina yfir verzluninni
hér aftur. Um 1560 ákærði kaupmaður konungs í Vestmannaeyjum
Simon Surbeek að nafni, sjálfan lögmanninn, Pál Vigfússon lög-
manns Erlendssonar, fyrir að hann hefði styrkt verzlun englend-
inga í eyjunum. Var Páli lögmanni stefnt utan með konungsbréfl
1563 og 1569 og var houum fyrir þessar sakir vikið úr lögmanns-
sæti.2)
*) Kvarnarsteinn er hér og, i 3 brotnm, en hann er ekki fnllgerður; mun
hann vera frá síðari tímnm, eftir kvarnarsmiði 2, sem nú eru dánir fyrir allmörgum
árum. s) Safn II. 123.