Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 6

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 6
6 rad von Maurers, Göttingen 1893. Þrem árum síðar skoðaði D. Bruun Þingvöll og skýrir í bók siuni, Fortidsminder og Nutidshjem paa Island, Kh. 1897, nokkuð frá rannsókn S. V. og skoðun hans, sem hann er þó raunar ekki kunnugri en svo, að hann telur (bls. 202) S. V. hafa álitið lögberg vera þar sem hleðslan er á gjábarminum (fyrir norðan Snorra-búð). Á rökfærslur Kálunds minnist hann ekki, en getur að vísu um 2 af sönnunargögnum hans úr Sturlunga-sögu og virðist fallast á, að lögberg hafi verið vestan ár, og þykir senni- legt, að það hafi verið þar sem hleðslan er, eða að minsta kosti þar í nánd á gjárbarminum lægri. Dr. Björn M. Olsen var með honum á Þingvelli og athuguðu þeir að nýju það sem B. M. O. hafði áður (1880) veitt eftirtekt og tekið fram í ritgerð sinni um lögberg, hve glögt heyrist niður- og út-um þingstaðinn mál þess, er talar á upphleðslunni, þar eð lægri gjárbarmurinn er svo miklu hærri en flatneskjan fyrir neðan og gjárhamarinn vestri þó enn miklu hærri og hrindir frá sjer hljóðinu til áheyrandanna. Vegna ummæla Vilhj. Finsens einkum, sem ekki vildi fallast á skoðun þeirra Guðbrands og Kálunds um lögberg, skrifaði hinn síð- astnefndi ritgerð að nýju um lögberg í Aarb. f. nord. Oldkh. og Hist. 1899, bls. 1.—18. Hjelt hann þar fram sömu skoðun og áður um lögberg, tíndi fram öll gögn sín og annara, gerði grein fyrir hvað komið hafði fram um málið síðan 1877 o. s. frv., kvað lögberg hafa verið vestan ár á gjábakkanum lægri, nærri hinni fornu Hlaðbúð og skamt frá veginum, sem er í skarðinu inn í Almannagjá, hjá Snorra-búð; ef ekki á þeim stað, sem Jón Olafsson áleit, þar sem hleðslan er, þá sennilegast á næstu hraunbungunni fyrir sunnan veginn. — Það verður þá litla hraunbungan rjett sunnan við götuna. Árið 1905 kom út fornritasafnið Origines lslandicae í Oxford og á bls. 334—38 í I. b. er ritgerð, með korti, um Þingvöll, líklega eftir Guðbrand Vigfússon, sem var annar útgefandinn. Þar er því haldið fram, að lögrjettan hafi í fornöld verið þar hjá, sem byskupa- búð er nú kölluð, rjett fyrir vestan traðirnar, nyrzt milli þeirra og árinnar, og að lögberg hafi, í likingu við fyrirkomulagið á Þingvelli (Tinwald) á eynni Mön, verið í hávestur frá lögrjettu Er þetta skýrt á kortinu, sem fylgir með ritgerðinni, og verður lögberg eftir þess- ari kenningu á gjárbarminum lægri suður á móts við Miðaftans- drang á vestri gjárbarminum. Verður vikið að þessu síðar. Tveim árum eftir að Origines komu út með þessari grein Guð brands, — sem enginn gerðist til að andmæla nje samþykkja opin- berlega, svo mjer sje kunnugt, kom út Forer — »i anledning af Hs. Maj. kongens og de danske rigsdagsmænds besog i aaret 1907«.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.