Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 9
9
eftir tillögum Sigurðar Guðmundssonar, fornbúðanöfnin sum á tóttir
þær, er hann raarkaði á sinn uppdrátt.
Kálund Ijet sjer þar á móti nægja í ritgerð sinni (í Ial. Beskr.
I. bls 96—109) að geta um flestar þær fornbúðir, er nefndar eru
með nafni í sögunum (og Sturlunga-s, sjerstaklega), og hvoru megin
árinnar mætti ætla af frásögnunum, að hver þeirra hafi verið. Hann
áleit að Snorra-búð væri hin eina, sem ákveða mætti með vissu, og
að hún hafl verið þar sem í katastasis og enn er nefnd Snorra-búð;
hann áleit jafnframt, að Hlaðbúð hafi verið sama búðin og kölluð var
»búð Snorra goða« (þ. e. Snorra-búð) í Njáls-sögu, þar sem hún einn-
ig er nefnd. Sig Guðmundsson áleit að Virkisbúð hafi verið sama
búðin og Snorra búð, og Sigurður Vigfússon var einnig á þeirri
skoðun og sýndi fram á. að Hlaðbúð og »búð Snorra goða« í Njáls-
sögu hafi verið tvær búðir, en skamt i milli. Kálund þótti ekki ó-
líklegt að Virkisbúð hafi verið Mýramanna-búð, sem nefnd er í
Bandamannasögu og sögð hafa verið með virki; hafði G. Ceder-
schiöld gizkað á það. Um Byrgisbúð áleit Kálund, að hún hafi ver-
ið Svínfellinga-búð, sem nefnd er í Ljósvetninga-sögu, og að hún
hafi einmitt verið á Spönginni, þar sem mannvirkið er. Stendur
sú skoðun í sambandi við þá skoðun hans, að lögberg hafi ekki ver-
ið hjer. En þeir Sigurðarnir, sem eru þess fullvissir, að lögberg
hafi verið á Spönginni, álíta að Byrgisbúð hafi verið á oddanum,
sem gengur inn í klofninginn á norðurenda Flosa-gjár. Þóttust þeir
finna þar leifar af fornum virkisgarði úr grjóti, S. G. milli klofn-
inganna eða yfir þveran oddann, en S. V. á hafti mjóu, er verður
milli vestri gjárendans og annarar gjár, þar rjett norðuraf, sem vit-
anlega er eins konar framhald Flosa-gjár. Þó sáu þeir engar leifar
búðarinnar þarna og því áleit S. V. að Birgisbúð hafi »líklega al-
drei nema tjaldbúð« verið, en S. G. gefur í skyn að búðartóttin
kunni að dyljast í grámosalagi, sem er á oddanum. Það skal strax
tekið fram viðvíkjandi þessu, að hvorki jeg, nje neinir aðrir, sem
með mjer hafa skoðað þennan stað, hafa nokkuru sinni getað sjeð
þar hinar minnstu hleðsluleifar eða nokkur verksummerki. Að
nokkur mannvirki sje hulin í mosalaginu getur ekki náð nokkurri
átt. Að Byrgisbúð hafi verið hjer, á móts við Vellina efri norðan-
til og því sennilega all-langt fyrir utan þinghelgi, virðist einnig vera
mikil fjarstæða og eins sú ágizkun, að hún hafi aldrei verið annað
en tjaldbúð, þ. e. eitthvert tjald, sem Flosi setti þetta sumar, eða
sett var þá og þá á þennan odda. — Væri hjer nokkur forn búða-
tótt, þá gæti þó má ske komið til álita að rökræða, hvort Byrgisbúð
hafi getað verið hjer, utan þinghelgi, en þar sem það er ekki og