Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 34
34
Árið 1788 varð MagDÚs Stephensen, sonur hans, varalögmaður og
hafði lögmannsembætti á hendi alla tíð síðan, meðan alþing stóð.
Hefir hann þá sennilega jafnan tjaldað búð þessa (1788—98). Hver
hafi haft hana 1766—88 er óvíst, en geta má þess, að amtmanns-
embættinu var skift fám árum eftir að Olafur tók við því, 1770;
var hann amtmaður yfir Norðlendinga- og Austfirðinga-fjórðungi til
1783, er hann fjekk lausn. Er vafasamt, hvort hann hefir þá haft
amtmannsstofu á Þingvelli þau árin, eða tjaldað búð sína. Árið
1787 var hann skipaður yfir vesturamtið og 1790 varð hann stifta-
amtmaður, en 1793 fjekk hann suðuramtið fyrir vesturamtið. Sem
stiftamtmaður og amtmaður í suðuramtinu mun hann hafa haft
amtmannsstofu alla tíð til þess er alþingishaldið á Þingvelli var
lagt niður, hafi hún þá staðið svo lengi. Hann fjekk lausn frá
embættum sínum 1806. Dó 11. nóv. 18121. Magnús sonur hans dó
17. marz 18332.
Næst þessari tótt er hin gamla lögrjetturúst, útflött, sem lög-
rjettu-timburhúsið var reist á um miðja 18. öldina. Er hjer ekki
um búðartótt að ræða og á því betur við að skýra nánar frá þess-
um mannvirkisleifum síðar, i grein um lögrjettuna.
14 Um 30 metra fyrir sunnan þessa upphækkun, hina útflöttu
lögrjetturúst, er búðartótt, en í miili er djúp lægð, og hefir þar sýni-
lega aldrei nein búð verið. Miklu fremur lítur svo út, sem hjer
hafi einhvern tíma verið tekið upp efni í næstu mannvirki. Beint
uppundan þessari auðu lægð er lögberg með hinni tungumynduðu
upphækkun á. Er hallurinn hjer rúmir 22 m. frá jafnsljettu upp
að upphækkuninni, og er hann fremur jafn og sljettur á þessu
svæði. Tótt þessi er lítið eitt upp frá kvíslinni, og er svo sera í
Bmáhæð eða upphækkun með grjótþúst umhverfis að neðan, sunnan
og þó einkum, stórgrýttri, að norðan. Verður utanmál því vart
ákveðið, en að innan er lengdin 5,50 m. og br. 1,50 m. Dyr eru
á austurhliðvegg, J/8 frá suðurgafli. Snýr langsum sem hinar.
Búðaskipunin frá 1735 á sýnilega við þá búð, er hjer
hefir þá staðið, með þessum orðum: »Bud Logmannsens sal.
Benedix Þorsteinssonar stendur vid ána rjett fyrir nedan Snorra
Bud austan til vid Gótuna þa rided er úr almannagiaa ofann ad
Lógriettunne«. Benedikt var lögmaður norðan og vestan 1727—33,
en sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1708—33 og hefir sennilega tjaldað
1) Um hann sjá t. d. límarit Bmfj. III. 245—47.
2) Um hann sjá t. d. Safn II., 160—163, Timarit Bmf. III., 241—242, Ný
fjelagsr. 6. dr. o. fl.