Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Qupperneq 53
53
32- Norður undan 31., uppi við hallinn, beint upp frá 30. tótt,
14. m. frá henni, er glögg tótt, sem snýr langsum og hefir dyr á
þeim hliðveggnum, sem nær er ánni, miðjum. Veggir eru greini-
legir enn, og er suðaustur-hliðveggur, sá sem dyrnar eru á, um 1
m. að hæð enn sums staðar. Að utanmáli er tótt þessi 8 m. og 4,60
m., en að iunan 5 m. og 1,70 m ; en bliðveggir eru sjáanlega gengn-
ir mjög inn.
Nú segir í búðaskipuninni frá 1735: »Nordur undann henni (o.
húð Guðmundar Sigurðssonar, hjer 31.), upp vid Hallenn stendur
fíud Syslumanmens Jem Madtzsonar Spendrup af Skagafiardar syslu*.
Hjer er ekki um að villast, þessi er búðartóttin. — Þessi maður
komst yfir Skagafjarðarsýslu að nokkru leyti 1715 og að öllu leyti
1718, og fjekk staðfesting konungs upp á það 17. marz 1721. Var
þó ekki löglærður maður; en mjög var hann duglegur. Hann hjelt
sýslunni til þess, er hann druknaði 6. okt. 17351), sama árið og búða-
skipunin er samin. Að líkindum hefir hann bygt búð þessa og tjald-
að hana um 2 tigi ára eða nær því. — Eftir hann tók við sýslunni
í bili Oddur landþingsskrifari Magnússon, sem átti 17. búð, en síðan
hjelt Skúli Magnússon Skagafjarðarsýslu til þess er hann varð land-
fógeti 1749; má vel vera, að hann hafi tjaldað búð þessa eftir fyrir-
rennara sinn, en óvist er það, og eins, hvort hann síðan hafi tjald-
að 19. búð, er S. G. gefur í skyn, að hafi verið landfógetabúð, síð-
ustu þingárin að minsta kosti.
Nú segir í búðaskipuninni eldri: »Ásgrims Ellidagrimssonar bud
var upp ad gianne mots vid Gizors hvita bud«. Eins og áður var
sagt, sýnist búðaskipunin eiga við 30. búð hjer og því við þetta
búðastæði, 32., þar sem hún talar um búð Ásgríms. Tóttin er mörk-
uð á alla uppdrættina og ætla þeir S. G. og B. G. að hjer hafi ver-
ið búð Egils Skalia-Grímssonar samkvæmt búðaskipuninni frá 1700:
»Eigila Skallagrímssonar bud var millum Geirs Goda budar og giár-
ennar upp ad«. Kemur það af þvi, eins og áður var tekið fram, að
þeir hugðu, að búðaskipunin segði til búðar Geirs, þar sem er 30.
búð. Sbr. enn fremur það er sagt var hjer á bls. 51, í greininni um
31. búð, viðvíkjandi búðunum undir hallinum, og Alþ.st. bls. 10
(4.—5), með uppdrættinum og skránni aftan við. Eins og tekið er
fram af S. G. og Kálund, Isl. beskr. I, 102, má helzt ráða af frá-
sögnum Njáls-s um liðsbónar-ferðirnar Ásgríms og þeirra, að búð
hans hafi verið vestan ár; en ekki er víst af Njáls-s. nje Kristni-s.,
þar 8em hennar er óbeinlínis getið einnig, hvar helzt hún hafl ver-
ið þar. Ekki er ósennilegt, að hún hafi verið hjer sunnan til.
1) Sbr. Esp. árb. 9. d, bls. 127, og Sýslum.œfir bls. 406—410.