Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Side 63

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Side 63
63 eða hestarjett. Hún er vafalaust eldri en frá 19. öld, en óvíst er samt, að hún hafi verið notuð af þeim er til alþingis komu. S. G. setur 2 búðir fyrir norðan þessa, skamt frá (55—56 á uppdr. og skránni, bls. 20—21 í Alþst.), segir að megi »rekja stóra steina, er standa upp úr sljettri grundinni í þremur ferhyrningum«, og að hann hafi styrkst fullkomiega í þeirri trú, að þarna sæjust fornar búðatóttir, er hann sá, »að þær eru settar á gamla markið (svo í útg.; S. G. segir vitanlega ekki þá vitleysu, heldur hefir ein- hver breytt þessu, strikað út »planið« og skrifað »markið« ýfir; S. G. á við gömlu mýndina) hjer um bil í sömu röð og á sama stað«. Hann til tekur hvaða búðir þarna hafi verið og segir þetta alt »óyggjandi« og »efalaust*. Að sumu leyti byggir hann það á þvi, að Byrgisbúð hafi verið í klofinu á norðurendanum á Flosagjá (bls. 9). Það kann nú að sýnast óþarft að eyða orðum að þessu, en í stuttu máli sagt er þetta alt markleysa ein; Byrgisbúð hefir ekki verið á þessum umrædda stað, búðaleifar sjást alls engar, hvorki steinaferhyrningar eða annað, þarna undir hallinum, enda virðist þar ekki gott búðastæði, og gamla »planið« sýnir alls ekki þennan stað, nær ekki svo langt norður; á því eru sýnd að sönnu 3 smá- tjöld norðan ár, og tjald Hóla byskups að auk, en þau standa i röð frá austri til vesturs á grundinni, sem takmarkast af sýkinu að austan og ánni að sunnan, og eru tiltölulega langt frá hallinum. Þar sem S. G. markar fyrir tóttum, jafnvel eftir ákveðnar búð ir, norðan ár, sýnast nú engar búðir hafa geta verið nokkru sinni, sjá uppdráttinn aftanvið Alþst, og skrána, búðirnar með tölumerkj- unum 57—58, 61—62 (o. fl. hjá þeirri búð), 64—66 og 74. Allar eru þær markaðar á hrauni, svo að ekki hafa þær sokkið síðan 1860. Skal hjer ekki farið út í það, á hvern hátt S. G. gerir grein fyrir þessu í ritinu, en merkilega er lýsing hans ákveðin t. d. á Valhöll og öllum þeim mannvirkjum, er hann þykist hafa sjeð þar, og hefir mælt og teiknað nákvæmlega (bls. 31—32). Hjer eru öldungis óhreyfð verk náttúrunnar og ekki unnt að sjá, að mannshöndin hafi komið þar nálægt nokkrum steini. — En varla er von til, að menn sannfærist af þessum mótmælum einum saman, og skal því vísað á staðina sjálfa til athugunar. S. G. setur nafnið »Fangabrekka« austast á vellina, við hraun- ið nær miðju, ætlar að hún hafi verið þar. Þar er þó ekkert það við landslagið, sem virðist geta gefið tilefni til slikrar ágizkanar; sbr. Alþst. bls. 21. Vellirnir eru hjer fremur rakir oftast og ósljett- ir, allmikið um rotur og flög í þeim, móakendir nokkuð og grýttir. Alls engra raannvirkja er hjer vart, en akvegurinn, sem gerður var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.