Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 69
69
fiockinn Snorra.--------------Þeir Kolbeinn hliopo þegar upp ok
heim til buþar, ok toko brynivr sinar ok spiot ok skiolldo ok
gengo siþan suðr yíir aa ok upp a vollv. Mætte hann þa Vrækiu
ok bað hann ganga i lið með ser. Vrækia qvað ser eigi sama at
beriazt við favþur sinn. Kolbeinn varþ þa allstyggr, ok het a þa
Orm ok Þorarin tii liðueizlv. Biogguzt þeir þa allir til bardaga
ok fylktv liðe sino a vollunum fyrir neþan lavgrettu mille ok
Austfirðinga-buþar«.
Af því, hve fijótt þeir Kolbeinn verða varir við þennan atburð
hjá Jöklamanna-búð, verandi sjálfir staddir í búðarvirki þeirra Orms,
má ráða, að það hafi verið mjög skamt frá; og sömuleiðis er þeir
eru á leiðinni upp á völluna og fá ekki Orækju, sem þeir mæta, í
lið með sjer, heita þeir þegar á þá Orm og Þórarinn í virkinu til
liðveizlu, svo sem þeir væru þar alveg við höndina. — Er þetta
tekið fram hjer alt til þess að sýna, hvar þessar nefndu búðir hafa
verið, hjer um bil, og hve ósennilegt það er, sem þeir S. G. (Alþst,
bls. 34) og S. V. (Árb. 1880—1881, bls. 20, neðan máls) hafa haldið
fram, að búðarvirki þeirra Orms hafi verið þar sem er Snorra-búð
(S. G.) eða hleðslan á Lögbergi, þ. e. á gjárbarminum, hallinum,
skamt fyrir norðan hana (S G. og S. V.), eða austur á Spönginni,
eins og Kálund gizkaði á.
Kálund lítur svo á sem frásögn Sturl.-s. beri með sjer, að Byrg-
isbúð hafi verið nefnd svo vegna þess að hún var inni lokuð af
gjám1; eftir því hefði Spöngin þá átt að heita Byrgi, eða sá staður
á henni, sem hún stóð á. Af frásögninni í Njáls s., þar sem búðin
er nefnd, mun eiga að líta svo á, að búðin hafi borið þetta nafn
þá þegar, í byrjun 11. aldar (1012).
Það virðist á staðnum og eftir frásögninni í Sturl.-s. um dóm-
inn hjá Byrgisbúð sumarið 1120 líklegast, að hann hafi verið settur
á flötina fyrir norðan búðina og að sá virkisgarður, sem gætti þar
á einn veginn, hafi einmitt verið virkisgarður um þessa búð, enda
sjást þess engin merki, að hann hafi verið annars staðar á Spöng-
inni. — En þótt virki væri um Byrgisbúð 1120 er hæpið að það
hafi verið 1012. Er þó nefnd Virkisbúð á alþingi það sama sumar,
eins og áður var getið, en ekki er ugglaust um, að söguritarinn
nefni þar yngra nafni þá búð. — Hið hringmyndaða mannvirki
virðist þvi hafa verið búðarvirki, ekki yngra en frá byrjun 12. ald-
ar. Þó að búðin, sem stóð á því, kunni að vera frá seinni tímum,
eins og sagt var í Þjóðólfl 1851 (bls. 270) og S. V. þótti á sannast
1) Isl. beskr. I., 104, nr. 3. Aarb. 1899, bls. 8,