Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Qupperneq 92
92
armann á Þverárþingi. Rjett áður hefir verið sagt frá deilum á al-
þingi næsta sumar á undan og þá tekið fram, »at bvþir Snorra
Sturlu sonar stoþo hit næsta ok Allz-heriar-bvð, er Magnús goði atti,
son Gvdmundar griss ok Solveigar, dottvr Ions Loptz sonar«. Þá
hefir Snorri haft »Valhöll«, sem var austan árinnar, en bræður hans
Hlaðbúð, er var vestan ár. Þegar nú þessar deilur koma upp með
þeim Snorra og Magnúsi þykir Snorra hentara að vera ekki í »Val-
höll«, hið næsta óvinum sínum, heldur hinu megin árinnar, þar sem
bræður hans einnig voru1; þar gat hann og verið nærri lögbergi,
gert »búð þá upp frá lögbergi, er hann kallaði Grýlu«. Nafnið,
sem hann gaf búðinni, kannast allir við og skilja hví hann hefir
valið það. — I þrem pappírshandritum af Sturl.-s. frá 17.—18. öld-
inni, sem öll eru gerð eftir sama pappírs-handritinu, litlu eldra, er
búðin nefnd Grýta. Hefir af mislestri eða misskilningi verið skrifað
t fyrir 1, en á þeirri rangfærslu er vitanlega ekkert mark takandi;
má furðulegt heita að það skuli þó hafa verið gjört af öðrum eins
mönnum og Sigurði Guðmundssyni (Alþst., bls. 33) og Guðbrandi
Vigfússyni (í útg. hans af Sturl.-s.). — Grýtu hefði mátt nefna ein-
hverja búð úr grjóti, helzt smábúð, eftir nútíðarmerkingu orðsins;
en þessi nýja búð Snorra hefir sennilega ekki verið nein smábúð,
nje fremur úr grjóti en aðrar þingbúðir. — Sennilegast virðist, að
hún hafi verið gerð fyrir þetta þing eitt og verið úr timbri eða
tjaldbúð. — Tvö af þessum sömu pappírshandritutn hafa lögréttu
fyrir lögbergi. Sú orðabreyting er einnig herfileg rangfærsla og er
að engu hafandi; breytir mjög meiningunni í þessu efni, sem hjer
er um að ræða og kemur alls ekki heim; lögrjettan var nefnilega
ekki vestan ár á þessum tímum og því óhæfa að nefna nokkra búð
vestan ár svo sem verandi upp frá lögréttu. Gegnir því hinu sama
um þá Guðbr. Vigfs. og S. G. viðvíkjandi þessari rangfærslu sem
hinni. Jafnvel þótt lögrjettan hefði verið þetta sumar í Kagahólma,
eins og S. G. heldur af þessu, þá er samt óeðlilegt að fara að miða
búð vestan ár við hana þar og taka þannig til orða, meira að segja,
að hún hafi verið upp frá lögrjettu. — Það er líklegt, að þeim er
þetta skrifuðu i handrit sín á 17. eða 18. öldinni hafi fundist það
í alla staði eðlilegt; þá var lögrjettan nefnilega vestan ár og ein-
mitt rjett hjá lögbergi, eins og áður hefir verið skýrt frá; hefir
Grýla einmitt verið upp frá þeim stað, sem lögrjetta stóð á er þessi
handrit voru skrifuð. En svo er jafnframt hins að gæta, að þessir,
sem pappírshandritin skrifuðu, kunna að hafa, samkvæmt því sem
1) Sjá nánar nm þetta alt 1 ritgerð B. M. 0. i Germ. Abh.