Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Blaðsíða 49
MINNINGARTAFLA
53
Guörún krýpur hægra megin krossins og horfir á sama hátt til vinstri. Hún
er klædd svartri hempu með uppslögum á ermunum, hefur pípukraga um
háls, knipplaðan fald á höfði og mjög barðastóran hatt, svartan með ljósari
röndum, þar yfir.
Gólfið, sem þau krjúpa á, er dökkblátt og hvítt reitagólf, líkast skákborði,
og er kross Krists aftan við gólfið. Kristur er sveipaður lendaklæði og yfir
höfði hans áletrunin I.N.R.I. Til beggja hliða eru rauð tjöld, bundin upp í
hnút, og neðst á þeim gulleitt kögur og gulleitur munsturbekkur fyrir ofan. Á
milli tjaldanna og krossins eru sýnd skjaldarmerki þeirra hjóna, Björns og
Guðrúnar. Þau eru eins í meginatriðum. I skjaldarmerki Björns er hvitur, sitj-
andi fálki á rauðum (ætti að vera bláum) skildi, ofan á skildinum riddara-
hjálmur og þar ofan á situr fálki með þanda vængi, hvort tveggja silfurlitt.
Horfa báðir fálkarnir til hægri (skjaldmerkjalega séð), en beggja vegna
skjaldarins og hjálmsins eru rauðar barokk-rósir. Skjaldarmerki Guðrúnar er
í meginatriðum eins, nema hvað hvítur einhyrningur er á rauðum (ætti einnig
að vera bláum) skildinum og silfraður einhyrningur ofan á riddarahjálminum,
báðir sýndir niður að miðju og snúa til hægri. Sams konar barokk-rósir, nema
heldur fíngerðari, eru beggja vegna skjaldarins og hjálmsins, og er hjálmurinn
áberandi minni en hjálmur Björns.
Bæði þessi skjaldarmerki eru auðþekkt, merki Björns mun upphaflega kom-
ið frá Lofti ríka á Möðruvöllum, Guttormssyni, enda var Björn kominn af
honum í 9. lið. Merki Guðrúnar er hið gamla skjaldarmerki Eggerts lögmanns
í Bæ Hannessonar, en Eggert faðir Guðrúnar var sonur Björns sýslumanns í
Bæ og á Skarði á Skarðsströnd, Magnússonar, en móðir Björns var Ragn-
heiður Eggertsdóttir lögmanns Hannessonar.
Innan á vængjum minningartöflunnar eru sex myndir, þrjár á hvorum. Á
vinstri væng efst sést er Gabríel erkiengill birtist Maríu og boðar fæðingu
Frelsarans. Situr María við lespúlt með hendur i bænarstellingum en engillinn
heldur á pálmaviðargrein í vinstri hendi og blessar með hinni hægri. Bæði
hafa þau gulan og rauðan geislabaug, en aftan við í skýjum flýgur dúfa, heil-
agur andi, einnig í geislabaug, en í honum er grænn hringur að auki við gula
og rauða litinn. Neðan við stendur svörtum, gotneskum stöfum á hvítum
grunni: Christi Getnaður. Á miðmyndinni sést tilbeiðsla austurvegsvitring-
anna, situr María með barnið í keltu sér, Jósef stendur á bak við hjá asna og
uxa í gripahúsinu, en vitringarnir sýna Jesú lotningu og fellur einn þeirra
fram. í fjarska sjást svo fjárhirðarnir úti á völlunum og engill i geislabaugi hjá
þeim. Undir myndinni stendur: Christi fæðing. Neðsta myndin er svo af skírn
Jesú. Stendur hann í ánni Jórdan í lendaklæði einu fata, en Jóhannes skírari
eys yfir hann vatninu. Yfir svífur heilagur andi í dúfulíki og á bak við er trjá-