Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Blaðsíða 48
52
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
í Saurbæ í gríðarlegu stórviðri og brotnaði i spón. Skemmdist þá ýmis-
legt gripa og nýja taflan gereyðilagðist. Hætt er við, að þessi gamla minn-
ingartafla hefði brotnað öll hefði hún verið í kirkjunni þá.
Minningartaflan hefur ekki verið til sýnis i Þjóðminjasafninu nema um
stundarsakir, heldur höfð í geymslu. En nú er verið að ganga frá nýrri kirkju í
Saurbæ, reyndar gamalli þó, þar sem er hin gamla Reykhólakirkja, flutt
þangað vestur. Vantar nú altaristöflu í þá kirkju og þykir því einsýnt að senda
aftur gömlu minningartöfluna vestur í Saurbæjarkirkju, enda er kirkjan
endurreist að miklu leyti að tilstuðlan Þjóðminjasafnsins og kemur það
væntanlega til með að hafa hönd í bagga með varðveislu hennar framvegis.
Má þannig líta á, að taflan sé lánuð aftur vestur að Saurbæ, en safnið teljist
áfram formlegur eigandi hennar.
Minningartafla þessi er merkileg fyrir tvennar sakir. Allt bendir til, að hún
sé íslenskt listaverk og hún er til minningar um nafnkennda ábúendur í Bæ og
með mynduin þeirra. Engan veginn er þó víst, að andlitsmyndirnar séu til-
takanlega líkar því fólki, sem þær eiga að sýna, en eitthvað geta þær verið í
áttina.
Minningartaflan er olíumálverk, máluð á þrjú eikarspjöld, sem felld eru i
strikaðan ramma. Ramminn er úr furu og er ofan á honum strikuð eikarfjöl,
fest með trénöglum, en engin samsvarandi undir. Vængirnir eru hvor úr sínu
eikarspjaldi í eikarramma af sömu hæð og ramminn um töfluna, en hvor
rammi helmingi mjórri. Hangir hvor vængur á tveimur lömum, en læsing er
engin fyrir né krókur.
Bæði á töflurammanum og römmunum á vængjunum eru göt, sem virðast
nýleg. Sýnist helst að taflan hafi verið skrúfuð þannig opin á kirkjuþilið, en á
baki myndarrammans eru lítilfjörlegar leifar af ryðguðum krókum.
Sjálf taflan er 107,5 sm há, mælt upp fyrir eikarfjölina, og 79,4 sm breið.
Vængirnir eru sem næst 105,7 sm háir og 39,5 sm breiðir. Myndflötur töfl-
unnar hefur verið sem næst 65-65,6 x 92,5 sm, en hefur rýrnað um 1,6 sm á
breiddina. Taflan má heita allsendis óskemmd, en allóhrein og þyrfti hreins-
unar við áður en hún verður sett í kirkjuna að nýju.
Ramminn um töflu og vængi er málaður svartur og strikin innan í hafa
verið gyllt eða bronsuð. Myndin á minningartöflunni sjálfri er í hinu hefð-
bundna formi, maður og kona krjúpandi við kross Krists. Eiga myndirnar að
sýna Björn Gislason bónda í Bæ og Guðrúnu Eggertsdóttur konu hans, svo
sem áletrunin á vængjunum ber með sér. Er Björn vinstra megin, klæddur
svartri hempu og dökkleitum búningi innan undir. Hvítar, rykktar ermar ná
fram á úlnliði og um hálsinn hefur hann hvítt hálslín með knipplingum. Hann
er berhöfðaður, hárið jarpt og nær út á herðarnar, hendurnar í bænarstell-
ingum framan við brjóst. Hann horfir lítið eitt til hægri, inn í myndina.