Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Blaðsíða 175
FRÁ FORNLEIFAFÉLAGINU
AÐALFUNDUR 1980
Aöalfundur Hins íslenzka fornleifafélags var haldinn hinn 17. desember 1980 i Fornaldarsal
Þjóðnrinjasafnsins og hófst kl. 8.35. Fundinn sátu um 50 manns.
Formaður félagsins, dr. Kristján Eldjárn, setti fundinn og minntist fyrst þeirra félagsmanna,
sem stjórnin hefur haft spurnir af, að látizt hafi, síðan aðalfundur var síðast haldinn. Þeir eru:
Axel Ólafsson lögfræðingur, Reykjavík.
Einar Pálsson fyrrverandi útibússtjóri, Selfossi.
Eiríkur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri, Akureyri.
Finnur Guðmundsson náttúrufræðingur, Reykjavík.
Georg Arnórsson málarameistari, Reykjavík.
Gísli V. Vagnsson bóndi, Mýrum, Dýrafirði.
Hákon Guðmundsson fyrrverandi yfirborgardómari, Selfossi.
Helgi lngvarsson fyrrverandi yfirlæknir, Reykjavík.
Jóhann Jónasson verkamaður, Brú, Vestur-Eyjafjallahrepp, Rang.
Jörundur Brynjólfsson, fyrrverandi alþingismaður, Kaldaðarnesi.
Ólafur Jónsson náttúrufræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri, Akureyri.
Risu fundarmenn úr sætum i virðingarskyni við hina látnu félaga.
Formaður skýrði frá því, að Árbók fornleifafélagsins væri komin í prentun og yrði nú í fyrsta
sinn offsetprentuð. Þá greindi hann frá því, að Vilhjálmur Einarsson á Selfossi hefði lokið við að
semja registur yfir Árbók félagsins um árin 1954-1979 og hefði hann gert það í sjálfboðavinnu.
Vonaðist formaður til, að unnt yrði að gefa registrið út á næstunni. Jafnframt minnti hann á ljós-
prentun eldri árganga Árbókarinnar á vegum Hafsteins Guðmundssonar bókaútgefanda.
Þá gat formaður þess, að hann hefði á síðastliðnu sumri sótt fund frjálsra samtaka um húsa-
friðunarmál á Norðurlöndum, sem haldinn var í Útsteinsklaustri í Noregi.
Formaður skýrði frá því, að félagsmenn væru nú á 7. hundrað.
Þessu næst las gjaldkeri reikninga félagsins 1979.
Þá skýrði formaður frá því, að stjórn félagsins hefði einróma kosið Jón Steffensen prófessor
heiðursfélaga Hins íslenzka fornleifafélags og færði honum þakkir fyrir ágæt störf í þágu félags-
ins. Fundarmenn tóku undir orð formanns með lófataki. Jón Steffensen færði félaginu þakkir
fyrir heiðurinn.
Hafsteinn Guðmundsson gerði síðan grein fyrir endurprentun Árbókarinnar, kvað kaupendur
vera tæplega 200 og mættu þeir vera fleiri. Hann vonaðist til, að unnt yrði að gefa út þrjú bindi á
næsta ári.
Þá kvaddi Gunnlaugur Haraldsson sér hljóðs og ræddi ýmsa þætti i starfsemi Fornleifafélags-
ins og bar fram tillögur um nýjungar, svo sem tíðara fyrirlestrahald og umræður um þjóðminjar
og útgáfu alþýðlegs ársfjórðungsrits í líkingu við Skalk og fleiri norræn þjóðminjarit. Hann stakk
upp á því, að aðalfundur yrði haldinn úti á landsbyggðinni annað eða þriðja hvert ár. Jafpframt