Óðinn - 01.01.1929, Blaðsíða 20
20
ÓÐINN
Arnheiðarstaðahjónin
Sigríður Sigfúsdóttir og Sölvi Vigfússon.
Kongur alvaldur engla
angrið þeim bæti stranga.
Slyngari’ við Fjölnis fenginn
fangar ei maður Rangá.
Pað er auðsætt að sjera Þorvaldur hefur haft
mætur á Eiríki og metið hann mikils og vitað,
að hann var vinsæll, þar sem hann telur sveit-
ina syrgja hann (»Tunga tregar drenginncc). Hið
sama kemur og fram í vísu, sem maður orti,
er fór um á Rangá rjett eftir að Eirikur dó:
»Rangá er nú raun að sjá;
rjett í blóma stendur tún.
Eirikur er fallinn frá.
Flestum trúi’ eg vökni brún«.
Það hefur þótt sneiðast um við fráfall hans.
Hann hefur dáið um 1715—1720,62 — 67 ára, líklega
nær 1715. Kona hans hjet Ingibjörg Ormsdóttir
bónda á Hallgeirsstöðum (1681) Jónssonar. Dóttir
þeirra var Kristín kona Snjólfs Sæmundssonar
á Urriðavatni og var ein dóttir þeirra Ingibjörg
kona Hildibrands Einarssonar á Urriðavatni.
Sonur þeirra var Einar bóndi Hildibrandsson
á Urriðavatni, faðir Hildibrands á Hofi í Fell-
um, föður Arndísar seinni konu Gríms Gríms-
sonar í Leiðarhöfn. Sonur þeirra var Grímur
trjesmiður faðir Jóns söðlasmiðs á Seyðisíirði,
Gríms í Hvammsgerði og Kristjáns, föður Guðna
kaupmanns á Vopnafirði. Dóltir Einars Hildi-
brandssonar á Urriðavatni var Ingibjörg kona
Jóns hreppstjóra á Urriðavatni Árnasonar í Lönd-
um í Stöðvarfirði, Torfasonar í Sandfelli, Páls-
sonar prófasts á Kolfreyjustað, Ámundasonar.
Dóttir þeirra var Anna móðir ólafs í Mjóafirði,
föður Sveins alþingismanns í Firði.
Þó að nokkuð hafi kveðið að Rangá, meðan
þeir Gísli Nikulásson og Eiríkur Hallsson bjuggu
þar, þá bar hún engar varanlegar menjar þeirra,
og engin börn þeirra bjuggu þar. t*að er fyrst
Hallur Einarsson og svo Björn sonur hans, sem
hafa hafið hana upp í röð hinna bestu bæja í
Fljótsdalshjeraði og láta þar eftir sig varanlegar
framfaramenjar.
Einar Jónsson.
%
Vorið 1887 byrjuðu þau búskap sinn á Arn-
heiðarstöðum Sölvi Vigfússon og Sigríður Sig-
fúsdóltir. Settu þau bú saman með allmildum
efnum og góðri forsjá, og var þegar rausn í búi.
Höfðu forfeður Sölva í beinan karllegg búið á
Arnheiðarstöðum óslitið um allangt skeið. Fyrst
Vigfús prestur Ormsson, eftir að hann ljet af
prestsskap, þá Guttormur stúdent og alþingis-
maður og loks Vigfús faðir Sölva — og allir með
rausn og skörungsskap.
Arnheiðarstaðir eru höfuðból að fornu og nýju.
Á söguöldinni keypti þar land — er áður hjet
Vallholt — Þorvaldur Piðrandason hins gamla,
og uxu þar upp með móður sinni og dvöldust
lengstum — eftir að Porvaldur druknaði í Lag-
arfljóti — synir hans, garparnir Droplaugarsyn-
ir. — Og það sem menn þekkja til sögu jarð-
arinnar á öðrum tímum, hefur þar jafnan verið
skörulegur búskapur.
Jörðin liggur vestanvert við Lagarfljót ofan-
vert, þar sem það er einna breiðast, gegnt Hall-
ormsstaðaskógi. Hún er talin vildarjörð, en er
þó að sumu leyti allerfið og fólksfrek til nytja.
Aðalkostir eru: stórt tún, landrými, landkostir
góðir og beitarsæld á vetrum, en engjar fremur
graslitlar, dreifðar og sumpart fjarlægar.
Pað orð lagðist brátt á um Arnheiðarstaða-
heimili, að þar væri myndarbragur á öllum bú-
skapar- og heimilis-háttum innanbæjar jafnt og
utan, heimilið stórveitult, aðlaðandi og skemti-
legt jafnt fyrir heimilisfólk sem aðkomendur.
Reyndist það og jafnan svo aðkomendum er til
var að taka, hverjum sem á reyndi. Var þar að
mæta frábærri alúð og gestrisni, svo að við var
brugðið greiðvikni, fyrirbeina, hugkvæmni og
alúð húsbænda við alla þá, er að garði bar.
Voru það margir, sem þess nutu, því jörðin
liggur i þjóðbraut, og sluppu fáir um garð svo
að eigi nyti þar beina.
Pó vel væri búið og myndarlega á Arnheið-
arstöðum áður en þau Sölvi og Sigríður reistu
þar bú, þá bættu þau þar búhagi og bújörð að
mörgu leyti. Jörðina bæltu þau og prýddu og
endurbættu og reistu af nýju hús og mannvirki.
Pau bygðu þar upp stórt og reisulegt timbur-
hús, girtu túnið, er áður var ógirt, sljettu það,