Óðinn - 01.01.1929, Blaðsíða 53

Óðinn - 01.01.1929, Blaðsíða 53
Ó Ð I N N 53 Þorvarður Þorvarðsson prentsmiðjustjóri. Það er nú í ráði, að landstjórnin kaupi prent- smiðjuna Gutenberg, og fjekk hún heimild til þess hjá Alþingi á síðastliðnum vetri. En ekki mun þó samningum um kaupin lokið enn, og líklegast fara ekki eigendaskiftin fram fyr en um næstu áramót. Prentsmiðjan Gutenberg er nú 25 ára, og strax í byrjun varð Þorvarður Þor- varðsson einn af forgöngumönnunum að stofnun hennar og hefur hann alla tíð síðan verið for- stjóri prentsmiðjunnar, en hún var stofnuð sem hlutafjelag og áttu allir prentararnir, sem þar unnu, hluti í fyrirtækinu. Mun það vera eitt hið fyrsta fyrirtæki hjer, sem stofnað er til með jafn- aðarmenskusniði. Þorvarður hafði 1902 stofnað hjer prentsmiðju, sem hann nefndi »Reykjavíkur- prentsmiðjucc, og keypti hlutafjelagið Gutenberg hana, en fjekk mikið nýtt til viðbótar, svo að Gutenbergprentsmiðjan varð, er hún tók til starfa, stærsta og fullkomnasta prentsmiðjan, sem þá var til hjer á landi. Eru myndir af prentsmiðjunni, forstöðumanni hennar og stofn- endum, í nóvemberblaði Óðins 1908, og þar sagt frá stofnun hennar og fyrirkomulagi. Porvarður Þorvarðsson er nú nýlega orðinn sextugur, fæddur 23. maí 1869, sonur Þorvarðs hreppstjóra á Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd og konu hans Margrjetar Sveinbjarnardóttur prests á Staðarhrauni, Sveinbjarnarsonar lög- rjettumanns á Hvítárvöllum. Var Þorvarður nokkur ár í Latínuskólanum, en lærði jafnframt prentiðn á sumrum. Veturinn 1890 sagði hann sig úr skóla og gaf sig eftir það allan að prent- arastörfum. Fór hann skömmu síðar til Kaup- mannahafnar og var þar við prentstörf um hríð og síðan við ýmsar prentsmiðjur hjer í bænum, þar til hann stofnaði sjálfur prentsmiðju 1902, eins og fyr segir. Hann hefur verið dugnaðar- maður og athafnamaður, með glöggu auga fyrir nýungum á öllum sviðum. Eftir að hann eign- aðist prentsmiðju stofnaði hann þrjú hlöð, fyrst vikublaðið »Reykjavík«, þá barnablaðið »Æsk- una«, sem enn kemur út, og loks mánaðar- blaðið »Nýja lsland«. Það var fyrsta blaðið hjer, sem hjelt fram kenningum jafnaðarmanna, og Þorvarðurgekst hjer fyrstur manna fyrir stofnun fjelags- skapar meðal veikamanna og var formaður fyrsta verka- mannafjelags- ins, sem hjer var stofnað. Einnig gekst hannfyrirstofn un Leikfjelags Reykjavikur og var lengi for- maður þess. Prentarastjett- inni hjer hefur hann verið hinn þarfasli maður og var lengi forgangsmaður í öllum fjelagssamtökum hennar. Á sextugasta afmælisdegi hans gerði Prentarafjelagið hann að heiðursfjelaga sínum. Fyrir Templarafjelagið hefur hann lengi unnið og var um eitt skeið útgefandi og ritstjóri blaðsins »Templar«. Hann átli um hríð sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur og er þess nú mjög minst, hve fast hann hjelt því þar fram, að bærinn tæki Sogið til virkjunar í stað Elliðaánna, og munu nú flestir sammála um, að hann hafi sjeð þar rjett, þótt hann stæði þá einn uppi með skoðun sína í því máli. Nú fyrir skömmu hefur bæjarstjórnin samþykt að virkja Sogið. Porvarður Porvarðsson. meir. Þá (1892) byrjaði hann meðal annars að skrifa dagbækur, er hann hjelt síðan áfram til dauðadags. Upp frá því notaði hann hverja tómstund til ritstarfa, safnaði fróðleik, skrifaði sagnir og munnmæli og orkti jafnt og þjett, m. a. heila rímnaflokka. Nítján ára að aldri fluttist hann úr Önundar- firði að Eyrardal í Álftafirði. Saknaði hann æsku- stöðvanna og mintist þeirra með hlýju, þrátt fyrir alt. Frá Eyrardal fór hann vestur á Barða- strönd til frænda síns D. Sch. Thorsteinssonar hjeraðslæknis. Þaðan fór hann svo til Reykja- víkur og hugðist læra skósmíði, en þoldi það ekki sökum heilsubrests. Byrjaði hann þá að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.