Óðinn - 01.01.1929, Blaðsíða 58
58
ÓÐINN
Magnús Friðriks-
son og Staðarfeli.
fellshjónanna, Magnúsar Friðrikssonar og Soffiu
Gestsdóttur, sem er jörðin Staðarfell, virt á 70
þús. kr., en með áhvílandi 8400 kr. skuld, og
siðar 10 þús. kr. peningagjöf, og er ætlunarverk
þeirrar gjafar, að halda uppi húsmæðrakenslu-
deild við skólann. Gjöf Staðarfellshjónanna nefn-
ist: »Minning fósturbræðranna Gests Magnús-
sonar og Magnúsar Guðflnnssonar«, en Gestur
var sonur þeirra hjónanna og druknaði fyrir
nokkrum árum, en Magnús var fóstursonur
þeirra.
Gjafabrjef frú Herdísar er frá 15. janúar 1890.
Hún hugsaði sjer skólann í likingu við þáver-
andi Ytri-eyjarskóla og óskaði, að hann yrði
helst settur í einhverja af sýslunum kringum
Breiðafjörð, en yrði því ekki við komið, þá í
ísafjarðarsýslu, eða þá, hvar sem hentast þætti
í Vesturamtinu. Er langt síðan að farið var að
ræða um það þar vestra og í blöðum landsins,
hvar skólanum skyldi valinn staðinn, og komu
fram um það margar uppástungur. En gjöf
Staðarfellshjónanna er því skilyrði bundin, að
Herdísarskólinn yrði reistur á Staðarfelli og tók
landsstjórn og Alþingi á sínum tíma við gjöf-
inni með þvi skilyrði. Er afsalsbrjef þeirra fyrir
eigninni dags. 6. apríl 1921. Staðarfell er ættar-
óðal frú Herdísar. Þar höfðu forfeður hennar
búið um langan aldur og gert garðinn frægan.
Er því líklegt, að henni hefði verið það vel að
skapi, að skólinn yrði reistur á Staðarfelli.
Þar hefur nú um tvö undanfarin ár verið
rekinn lmsmæðraskóli, sem notið hefur gjafar
Staðarfellshjónanna og einnig verið studdur af
opinberu fje. Ungfrú Sigurborg Kristjánsdóttir
frá Múla í ísafjarðarsýslu hefur veitt honum
forstöðu og farist það prýðilega, en bróðir hennar,
Magnús Kristjánsson, sem áður var ráðsmaður
á búi Thors Jensen á Korpúlfsstöðum, hefur
staðið fyrir búi á Staðarfelli, hinn mesti dugn-
aðarmaður. Frá byrjun þessa árs hefur skólinn
verið rekinn fyrir reikning Herdísarsjóðsins.
Magnús Friðriksson hafði reist á Staðarfelli all-
stórt steinhús og vel vandað, og er það nú
skólabús. En ungfrú Sigurborg hefur látið reisa
til viðbótar timburhús, sem skólastúlkurnar sofa
í, en ekki sjest á myndinni. Er fagurt umhorfs
á Staðarfelli og jörðin veigamikil til búskapar,
enda gamalt höfuðból.
Vígsla skólans fór fram í kirkjunni á Staðar-
felli að viðstöddum fjölda manns. Voru þar
menn úr Reykjavík, sem kenslumálaráðherra
hafði boðið með sjer vestur á varðskipinu »óðni«,
úr Stykkishólmi og svo víða að úr Dalasýslu.
Magnús Friðriksson, sem nú er búsettur í Stykkis-
hólmi, stjórnaði vígsluathöfninni, en kenslu-
málaráðherra sagði sögu stofnunarinnar og ósk-
aði henni þrifa og heilla í framtíðinni. Ýmsir
fleiri töluðu, þar á meðal Páll Bjarnason sýslu-
maður, er mintist frú Herdísar, frændkonu sinn-
ar. Er mynd af henni í aprílblaði Óðins 1912.
Hún er þá dáin fyrir 14 árum og umræður eru
að hefjast um það, hvar hinn væntanlegi kvenna-
skóli Vesturlands eigi að standa. Frú Herdís var
dóttir Guðmundar Skeving í Flatey, en gift
Brynjólfi Benediktsen frá Staðarfelli. Hún »var
kvenna fríðust og höfðinglegust i sjón og hjelt
þeim yfirburðum til hárrar elli,« sagði Þórhallur
biskup um hana í »N.Kbl.«
0