Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Side 65
65
sitt, og baðstofu fyrir sig; líka lét hann byggja vænt
og sterkt hús með búri, borðstofu og kjallara, enn
bœkr sínar hafði hann í svo kallaðri norðrstúku í kirkj-
unni. Sér til uppeldis hafði hann „Hreppaumboð“
„og Skipholts búið“, og vóru það 33 jarðir með 153
kúgildum, enn landskuldir af þeim með kvöðum vóru
hér um bil XLIV hnd., og þar að auk nokkur upp-
sát við sjóar síðuna.
Sama sumar reið hann í seinasta sinni til alþing-
is og setti hina almennu prestastefnu ásamt fórði
varabiskupi; enn áðr enn henni var slitið, var lesið
upp uppgjafarbréf hans við meistara f>órð. pví næst
kvaddi Br. biskup kennidóminn með kærleiks handa-
bandi, og þá alla þá yfirmenn landsins, sem þar vóru
staddir, og loks vini sína, sem skyldu við hann með
tárum og trega. Sátu nú báðir biskuparnir það ár í
Skálholti með kærleikum, og leitaði f>órðr biskup
ráða hans og atkvæða í öllum stœrri málum. f>að ár
hélt Br. biskup 6 eða 7 skólapilta á sinn kostnað,
sýndi hina sömu rausn og gestrisni og áðr, og hélt
virðingu sinni til dauðadags.
Eftir þetta hætti hann að reka biskupsembættið,
nema hvað hann eftir boði konungs vígði Jón Vigfús-
son til biskups á Hólum, 10. s. e. Tr., og var það í
fyrsta sinn, sem nokkur var vígðr til biskups hér í landi.
Hann embættaði líka á hinum 3 stórhátíðum.
Hann hafði oft sagt við vini sina, að yrði hann
sjötugr, mundi hann verða fjörgamall, og að enginn
maðr mundi verða hjá sér þegar hann dœi. Skömmu
áðr enn hann sýktist minti einhver vina hans hann á
þetta og sagði við þann, að nú væri hann kominn á
70. árið og hefði góða heilsu, og mundi því enn eiga
mikið eftir ólifað. J>á svaraði biskup: árið er komið,
enn ekki liðið, (venerunt idus, sed nondum transie-
Tímarit hins islenzka Bókmentafélags. V. 5