Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Page 73
73
hann er holur neðst og þannig til búinn, að hann tek-
ur með sér sand og leir úr botninum, og er það allt
saman rannsakað af náttúrufræðingum, þá er upp
kemur. Neðarlega við standinn er og fest messingar-
hylki, og kemur það upp fullt af sjó, og er hann
einnig rannsakaður, til að þekkja allt eðli hans, eptir
því hversu djúpt er. Á línuna eru festir sérlega til-
búnir hitamælar, einn á hverjum ioo föðmum, og er
nákvæmlega tekið eptir og ritað upp hvað þeir vísa,
þá er upp koma; stundum er og mælt með miklu
fleiri hitamælum, á hverjum ioföðmum. Á 3,900 faðma
djúpi brotnuðu glerkúlurnar á hitamælunum af þrýst-
ingunni, og áttu þær þó að þola 600 fjórðunga álag.
Challenger-sökkurnar voru það betri en grunnsökkur
þær, sem vér nefndum fyr, að þær voru að eins fjórar
mínútur að sökkva 3000 faðma; en hinn lengri tími,
sem hinar þurftu, kom bæði af því, að verkfæri hafa
eigi verið eins góð, og svo af því, að menn hafa eigi
eins vel fundið, eða gefið gætur að, hvenær sakkan
kendi grunns1.
Fyrir utan það, að djúp hafsins er mælt þannig,
þá er einnig sjáfarbotninn sjálfur rannsakaður og allt
slætt upp sem verður með háfum og netum, sem fest
eru á járngjarðir og dregin eptir botninum til að ná
sjódýrum og öðrum náttúruhlutum; þeir dragjafnar
sem þar til eru hafðir, eru miklu stærri en þeir, sem
áður var lýst; taki steinn eða klettur í háfinn á marar-
botni, þá teygist dragjafninn þegar sem mest má verða,
tiu álnir (hann hangir undir stórránni og neðan í hon-
um er hjól það, er línan leikur á), og gefur hann þann-
I) Á hinu norska skipi, er hét „Vöringen“, og gjört var út til að kanna
norðurhöfin 1876 til 78, voru tilfæringarnar svipaðar þessum, en i ein-
hverju munar hjá öllum. Útgjörðar-kostnaðurinn við rannsóknarferð
Norðmanna voru 246000 krónur.