Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Síða 105
«°5
liggur fyrir rniðjarðarstrauminum, en úr honum lagði
ofviðrið inn í Mexíkó-flóa og þá tók Golfstraumurinn
við. Allt eyðilagðist á Barbados, var eigi nóg með
það, að stormurinn feykti ávöxtunum af trjánum, held-
ur og tætti hann af þeim börkinn, sjórinn rótaðist upp
frá botni, og múruð virki hrundu i grunn niður ; hús-
in féllu saman og sex þúsundir manna létust; veðrið
lypti dauðum líkunum og bar þau langar leiðir, það
tók og upp lifandi menn og dýr. Nokkuð norðar
liggur eyja sú er Sankta Lucia heitir. þ>ar lá skipa-
floti énskur, og fórst allur; þaðan gekk veðrið norður
að Martinique og braut 40 skip og létust þar 4000
frakkneskra hermanna; borg sú er Sankt Pierre heitir
eyddist gjörsamlega; síðan eyddi fellibylurinn enn
fleiri eyjar og meðal þeirra Portóríkó, hina frægu og
frjósömu tóbaksey; eptir það geysaði hann norður að
Bermúda-eyjum og braut þar fjölda enskra herskipa.
Svo geysilegir fellibylir ná raunar varla langt út
fyrir hitabeltið, en engu að síður verða opt aftakaveður
af þeim umbrotum loptstraumanna, er Golfstraumurinn
veldur. Sjómenn óttast hann mjög og kalla hann „storma
konung“ og „veðurvald,, („weather-breeder“).
Golfstraumurinn er merkilegastur allra hafstrauma
og því getum vér verið stuttorðari um hina aðra, sem
renna í allar áttir, sumir ofan en sumir neðan sjáfar.
Annar merkilegur straumur er Kuró Sívó (dökkstraum-
ur), er liggur fram með austurströnd Asíu í norður og
austur; hann flytur og töluverðan varma norðureptir,
bæði til Kamsjatka og Aljaska, og beygist suður með
Norður-Ameríku allt til Kalíforníuflóa ; þá beygir hann
aptur til vesturs og í hring til Sandvíkur-eyja og
myndar stóran straumhring utan um straumlaust haf,
þar sem þangjurtir og rekaviður safnast fyrir, og
feikna sveimar af sundfleyttum kúfungum, er nefnast
Ianthina, og af helsingjanefjum er sitja á viðarköstun-