Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1904, Page 6

Eimreiðin - 01.01.1904, Page 6
6 miðja 16. öld náði léreftið sér niðri sem alment fataefni meðal Norðurlandaþjóða, en það er fyrst á vorum dögum orðinn siður í Danmörku, að sveitamenn hafi léreft í annað en nærföt. Oss skjátlar varla í þeirri skoðun, að kvenbúningurinn á íslandi á öllum miðöldunum, þar eins og annarstaðar, yfirleitt hafi verið fólginn í fötum þessum: Inst var skyrtan eða serkurinn, sem oft- ast var úr ull. Utan yfir honum var fótsíður samfeldur kjóll og yzt hempa. Par við bættist háleistar eða hálfsokkar, sem frá fornöld til miðrar 16. aldar vóru úr vaðmáli, því prjónaðir ullar- sokkar ásamt sokkaböndum komu fyrst fram eftir daga Elísabetar Englandsdrotningar. Á miðöldunum hafði Norðurálfubúum þótt mest koma til fata, er vóru fótsíð og lágu í fellingum. En smátt og smátt urðu, einkum á fýzkalandi, búningarnir, bæði karla og kvenna, mjög ólögu- legir, óviðfeldnir og öfgafengnir. Viðreisnin (Renaissancen) kom einnig fram í því er klæðaburð snerti. Aðalbreytingin var sú, að kjólnum, sem hingað til hafði venjulega verið samfeldur eða óskiftur — og var smeygt niður yfir höfuðið — var nú skift í tvent: þröngan upphlut og slóðalaust pils; utan yfir þessu var venjulega borin síð hempa, sem var opin að framan. Stundum var aðeins efstu hálshnöppunum hnept, svo upphluturinn kom glögglega í ljós; þá sást bæði í upphlutinn og pilsið. Stundum var hempunni hnept alveg niður að mitti; þá sást aðeins í pilsið. Beinasta ástæðan til þess, að ýmsir hlutar búningsins vóru látnir sjást á þennan hátt, var sú, að með því var fengið tækifæri til að sýna skrautlegu, ljómandi efnin, er búningurinn nú samkvæmt tízku og smekk þeirra tíma var gerður úr. Áður hafði vaðmálið verið notað allmikið á Norðurlöndum, en nú vóru búningar heldri manna og kvenna nálega eingöngu saumaðir úr útlendum, dýrum, litsterkum, áburðarmiklum og marglitum efnum, eigi aðeins úr klæði heldur og úr silkiflosi eða silki. P'ötin vóru og oft útsaum- uð með silfri og gulli; einnig var dýrindis-loðskinn haft einkum til utanhafnarfata. Auk þess vóru búningarnir settir skartgripum í miklu stærra mæli en áður, þótt Norðurlandabúar hefðu, eins og áður er sagt, notað þá allmikið frá elztu tímum. Hér og í þvf, sem á eftir fer, eigum vér einkum við heldri menn og konur íslenzku þjóðarinnar og þá einkum við viðhafnar- búning þeirra. Að líkindum hafa búningar fátækari manna og kvenna og allrar alþýðu verið hér um bil með sama sniði, aðeins miklu fátæklegri.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.