Eimreiðin - 01.01.1904, Side 9
9
aldar. Á þeim öllum er nýbreytni viðreisnartímans nákvæmlega
fylgt. 2. og 4. myndin sýnir oss svonefndar »þröngar« hempur,
sem vóru hneptar eða kræktar frá hálsi til mittis, en 3. myndin
sýnir svonefnda »víða« hempu, sem er öll opin frá hálsi og niður
úr. Á hvorumtveggja eru
ermarnar þraungar um úln-
liðinn, en víðar um öln-
bogann. Undir hempunni
var borið bæði þröngi upp-
hluturinn og pilsið (3.
mynd). Um hálsinn sést
annaðhvort sléttur, kringl-
óttur og breiður lérefts-
kragi, ef til vill úr knipl-
ingum, eða pípukragi.
Löngun sú til að nota
marglit og dýr efni, sem
vér könnumst við annar-
staðar að, kom og í ljós
á íslandi. Hempurnar eru
einlitar og dökkleitar, en
pilsin ljósleitari, rauð á 2.
mynd, en á 4. mynd úr
rósóttu efni, ef til vill guð-
vef. Búningarnir á 4. mynd
eru augljóslega mjög dýrir.
þar er ekkert sparað í
neinu tilliti, enda vóru þær
konur, sem báru þá, á hæsta
stigi þjóðfélagsins. Jafnvel
línbrúnirnar við úlnliðina
eru skreyttar útsaum eða
kniplingum. Barmarnir á
hempunum eru og að framan skreyttir skartgriparöðum; auk þess
er þeim haldið saman í hálsinn með tvöföldum spennum. Á 2.
°g 3. mynd sést eigi vottur um pilsaglennu, en konurnar á 4.
mynd hafa ef til vill haft hana. Yfirleitt minna kvenbúningar
þessir á samsvarandi búninga frá Hollandi og Frakklandi á þessu
tímabili. Upp frá þessu verður það og siður á íslandi, að pilsin
4Vl Jbi
•Jorrufn
7. Heldri stúlka frá miðbiki 18. aldar.
(Eftir Ferðabók Eggerts Ólafssonar).