Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1904, Page 41

Eimreiðin - 01.01.1904, Page 41
41 eldri en þessi svipmiklu tindafjöll. Af Skarðsheiði t. a. m. má nú agætlega sjá, hvernig Súlur eru settar ofan á hálendið á líkan hátt eins og Eiríksjökull, og væri fylt upp í skörðin og jökul- bunga komin ofan á, kæmi fram ekki ósvipað fjall, sérstaklega að því leyti, sem bæði eru nokkurs konar yfirbyggingar á hálendi. En Súlur hafa grafist svona mjög sundur, bæði af því að eld- fjallið, sem þær eru svo að segja skornar úr, var svo nálægtjökul- rondunum, þar sem ágangur jöklanna var miklu meiri en innar í landinu og eins af því, að þær eru að svo miklu leyti gerðar upp af móbergi. Nálægt Kerlingarskarði á Snæfellsnesi er sundurgrafið eldfjall, sem spúið hefur dóleríthraunum fyrir síðustu ísöld; en þó eru þar til jöklamenjar, sem eldri eru en Kerlingarskarðseldfjallið; má til nefna jarðlag eitt í Búlandshöfða með ísnúnum steinum og íshafs- skeljum1. Fleiri dæmi mætti nefna, og það má telja víst, að til eru hér á landi eldfjöll (eða eldfjallarústir), sem spúið hafa dóleríthraunum og eldri eru en síðasta ísöld, en yngri en sú fyrsta. Verður af þessu líklegt, að dólerítfjöllin Ok og Eiríksjökull séu heldur ekki eldri en fyrsta ísöldin, og má nú raunar fá betri sönnun fyrir þessu. Á einum stað þóttist ég sjá jökulurð undir dóleríthrauninu frá Okinu, en ekki er þessi athugun eins viss og æskilegt væri. Pær ísaldarmenjar, sem sjást rétt hjá Eiríksjökli, eru allar yngri en fjallið, en í blágrýtishálsi, fyrir ofan Hvítársíðuna, sást jökulurð afarfornleg; blágrýtislög eru ofan á henni og henni hallar í áttina að jöklinum, eins og blágrýtislögunum; að hún er eldri en Strútur og Eiríksjökull er ekkert efamál. Eg veit, að þeim, sem vit hafa á jarðfræði, muni þykja það næsta glæfraleg ályktun, að önnur eins fjallbygging og Eiríksjökull sé risin upp eftir að ísöld hófst hér á landi; en eftir þeim at- hugunum, sem gerðar voru síðastliðið sumar(i903), er þetta lang- sennilegast. Vér álítum þá, að Eiríksjökull og ýms önnur dóleríteldfjöll, sem sýnd eru á hinum nýja jarðfræðisuppdrætti íslands, hafi byrj- að að gjósa eftir að fyrsta ísöldin hófst, en hætt gosum áður hinni síðustu lauk. Pá verður sú spurning fyrir, hvort þau hafi 1 Sjá: Yoldialagið í BúlandshÖfða. Tímarit Bókmentafélagsins 1903, bls, 60—70.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.