Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 60

Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 60
6o Hjálmari, og er þó vísa G. F. góð. — Ofurlitlum áhrifum hregður og fyrir frá Þorsteini Erlingssyni (t. d. bls. 47, 78,' 96 og víðar) og eru þau til góðs, það sem það er; en þau eru næsta lítil. En sýnileg áhrif frá öðrum skáldum en þessum tveimur, hyggjum vér að verði erfitt að finna. Hins vegar hefur G. F. í seinni tíð augsýnilega orðið fyrir annars konar áhrifum. Og þessi áhrif virðast aðallega stafa frá unnustu hans og ástum, sem hafa orðið göfgandi fijóregn fyrir sál hans og anda. Þess var einu sinni getið í Eimr. (III, 199), að ekki væri alt ætíð sem smekklegast hjá G. F. né laust við tilgerð, eins og einurð hans og þor stundum fengi á sig nokkurs konar gleiðgosablæ. En góður efniviður væri í honum; það þyrfti aðeins að hefla hann og fága, því hann væri enn að mestu leyti eins og hann hefði vaxið í skóginum og því eðlilega nokkuð kvistóttur. Alt þetta hefir nú stórum lagast með aldr- inum. Gleiðgosablærinn er algerlega horfinn og á tilgerðinni ber nú mjög lítið, þó enn megi sjá nokkrar menjar hennar í ýmsu orðavali. Tilgerð verðum vér og að kalla það, er hann (bls. 27) talar um »A1 fa vona og óska« sinna, í staðinn fyrir »upphaf vona og óska« sinna. Því »Alfa«, sem er nafnið á fyrsta stafnum (A) í gríska stafrófinu, táknar í þess konar orðatiltækjum ekkert annað en »upphaf« (»Alfa og Omega« = upphaf og endir). Ef höf. hefur þótt of hversdagslegt að brúka orðið upphaf, þá hefði legið nær að brúka »Ár« (nafnið á fyrsta stafnum í rúnastafrófinu forna), heldur en að vera að seilast suð- ur til Grikklands eftir nafni, sem fæstir íslendingar munu kannast við. En sem sagt, rostinn og tilgerðin eru á förum hjá G. F., og að það er að þakka unnustu hans og ástum fremur öllu öðru, má sjá af þessari vísu (bls. 66—7): Ef þú með mér værir, vina, Óðar legði eg af mér hýðið vildir ganga út í stríðið: allan skrápinn, hjartans vina. Unnustan hefur orðið við tilmælum hans og hann hefur haldið loforð sitt. En áhrif unnustunnar eru enn víðtækari. Áður var G. F. van- trúarmaður, en hún hefur gert hann að trúmanni. Hann segir sjálfur, að »trúin hafi flúið sig í æskunni« (bls. 44) og að hann hafi þá týnt bæn bernsku sinnar (bls. 76). 1893 efast hann stórlega um að nokk- urt líf sé til eftir lífið hér á jörðunni (»ef gátu þeirrar ráðningu nokkur annars sér«, bls. 95; »en eitt er víst: það að engir bijóta um eilífð friðinn, sem dánir njóta« bls. 91). 1895 er efinn orðinn miklu minni (»en ef til vill dagar þó eftir hinztu nótt«, bls. 12), en þó enn tals- verður og eins framan af árinu 1896 (»Annars heims í vonarveri — verði um nokkuð slíkt að gera«, bls. 107); en síðar á því ári virðist hann þó vera farinn að trúa á annað líf (bls 110). 1898 bólar þó enn á efanum (»Getur það verið: þú vakir?«, bls. 21), en trúin er þá samt orðin yfirsterkari (»Þú hlýtur að vaka«. »Ég sé að þú vakir«, bls. 21). Og það er engum blöðum um það að fletta, að það er unnustan, sem hefur gert hann trúaðan (»Því sýnileg ímynd hins sannhelga guðs er sálin í elskunni minni«, bls. 44). Sama árið (1898) er hann kominn svo langt, að hann getur beðið til

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.