Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 72

Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 72
72 sjöunda dægrið, yrði hann að vaka önnur sex dægur; því hann hélt að guð vildi svo vera láta. Nú var sjöunda dægrið næstum liðið, án þess hann hefði getað sofnað, því margir sjúkir og sorg- mæddir höfðu leitað hans. En þegar hann hafði sent þá alla frá sér og ætlaði að fara að leggjast til svefns, sá hann brúðina koma gangandi gegnum skóginn. Og hann hugsaði með sér: »Hvernig á þessi ferðakona að komist yfir straumharða fljótið, sem bólgnaði i^pp í nótt og ruddi af sér brúnni?« Síðan gekk hann frá hvílu sinni, fylgdi henni niður að fljótinu og bar hana á herðum sér yfir um. En þegar hann kom aftur til kofa síns, var svefntími hans liðinn, og hann varð að vaka önnur sex dægur, vegna þess- arar ókunnu konu. En hann iðraði þess ekki, því hún var gædd svo miklum ljúfleik, að öllum, sem sáu hana, þótti vænt um að leggja eitthvað á sig hennar vegna. Loks komst brúðurin heim til elskhuga síns; en þá var hann farinn inn í herbergi sitt og hafði skotið sterkum slagbröndum fyrir dyrnar. Og þegar hún barði að dyrum, vildi hann ekki opna. Pví hann hafði brugðið sverði, og ætlaði að fyrirfara sér. Ungfrúin gat engu orði upp komið vegna angistar. En tár hennar féllu í straumum niður á steingólfið og hann heyrði gegn- um eikarhurðina, hversu hún grét. Og hann gat ekki fyrirfarið sér, meðan hann heyrði þetta, svo hann opnaði dyrnar fyrir henni. þá stóð hún þar frammi fyrir honum grátandi, og sagði hon- um, hvernig sér hefði verið þröngvað. Og þegar hann sá, að hann átti stöðugt ást hennar, lofaði hann henni að ráða sig ekki af dögum. Pá hallaði hún sér að brjósti hans, og hann kysti hana, og þau kendu samtímis allrar þeirrar sorgar, sem hjartað getur rúmað. Hann sagði við hana: »Nú verður þú að fara, því þú ert kona annars manns«. Og hún svaraði: »Hvernig get ég það?« Enn riddarinn, sem elskaði hana, sleit sig úr faðmi hennar og sagði: Eg vil ekki gera þeim manni rangt til, sem leyfði þér að koma til mín«. Síðan lét hann söðla tvo hesta og fylgdi henni heim til föður hennar.------- Alt þetta sagði munkurinn óvini mannkynsins, án þess að vita, við hvern hann talaði. Og svo spurði hann, hver þessara, sem hann hefði sagt hon- um frá, honum fyndist hafa sýnt mesta sjálfsafneitun. Eví munkurinn var vitur maður og vissi vel, að enginn er

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.