Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 1

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 1
Heimastjórn Ira. Eins og kunnugt er, hafa írar nú í 40 ár (síðan 1872) háð snarpa baráttu fyrir því, að fá sérstakt löggjafarvald og heima- stjórn (Home Rule) á írlandi. Fyrst framan af mættu kröfur þeirra almennri mótspyrnu á Englandi, en 1886 tók Gladstone i strenginn með þeim, og síðan hefir meirihluti frjálslynda flokksins á þingi Breta jafnan verið þeim sinnandi. Afstaða Gladstones til þessa máls varð honum þó að falli um sinn, en hann komst samt aftur til valda 1892, og hélt þá enn fram sömu stefnu. En þó heimastjórnarfrumvarp hafi náð samþykki neðrideildar á þingi, þá hefir efrideild (lávarðadeildin) jafnan hrundið því, og með því eytt málinu. Lengst hefir málið komist síðastliðið ár, með því að núver- andi stjórn Breta hefir lagt fyrir þingið heimastjórnarfrumvarp, sem fulltrúar íra hafa gert sig ánægða með og veitt einhuga fylgi. Og í janúarmánuði í ár (1913) var frumvarp þetta samþykt í neðrideildinni með 368 atkv. gegn 258. En áður en mánuður- inn var á enda (31. jan. 1913) var efrideild búin að fella það með 326 atkv. gegn 69, og atkvæðamunurinn því geysimikill. Frá baráttu Ira fyrir heimastjórn og gangi málsins á þingi Breta hefir oft verið skýrt í íslenzkum blöðum; en frá efni heima- stjórnarfrumvarpanna eða hve rífleg sú heimastjórn er, sem fram á er farið, hefir ekki verið skýrt. Par sem við Islendingar nú eigum í sjálfstjórnarbaráltu við Dani, og oft hefir verið látið klingja, að þeir væru örðugir í viðskiftum, þá þykir oss líklegt, að mörgum lesendum vorum muni þykja fróðlegt að sjá, hve ríf- leg sú heimastjórn er, sem frjálslyndi flokkurinn á Englandi vill unna írum, og þeir gera sig ánægða með, til þess að geta borið hana saman við þá heimastjórn, sem Danir hafa viljað unna ís- lendingum. Vér birtum því hér á eftir þýðingu á heimastjórnar- frumvarpi því, er núverandi stjórn Breta lagði fyrir alþingi Breta. 6

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.