Eimreiðin - 01.05.1913, Blaðsíða 6
8o
9. gr. (i) í neðrideild alþingis íra eiga sæti 164 þjóðkjörnir
þingmenn, kosnir í kjördæmum þeim, sem talin eru í 1. viðbæti
þessara laga, og kosnir af sömu kjósendum og á sama hátt, eins
og þeir þingmenn, sem nú eru kosnir í írskum kjördæmum á al-
þingi Breta.
(2) Kjörtími þingmanna í neðrideild skal, nema þingið sé
fyr rofið, vera 5 ár, talið frá þeim degi, er þinginu er fyrst stefnt
saman eftir nýjar kosningar.
(3) Þegar liðin eru 3 dr frd pví að l'óg pessi gengu í gildi,
getur alþingi Ira breytt kosningaskilyrðum til neðrideildar, kosn-
ingaraðferðinni og kjördæmaskipuninni; þó svo, að þingmannatala
deildarinnar haldist óbreytt og hæfilegt tillit sé tekið til mann-
fjölda kjördæmanna, annarra en háskólakjördæmanna.
10. gr. (1) Oll fjdrhagslög, skattar og ónnur tekjulög skulu
einungis eiga upþtök sín í neðrideildinni; en ekki skulu það
talin fjárhagslög né skatta, þótt lög innihaldi ákvæði um fjár-
sektir eða leyfisbréfagjöld eða embættislaun, sem ákveðin eru í
iögunum.
(2) Neðrideild Ira skal ekki taka að sér né samþykkja neina
ályktun, ávarp eða lagafrumvarp um það, hvernig verja skuli
nokkrum hluta af landsjóðstekjum Irlands eða nokkrum skatti,
nema samkvæmt meðmælum landstjóra á því þingi, sem ályktun-
in, ávarpið eða frumvarpið er borið upp á.
(3) Efrideild íra geiur ekki felt neitt frumvarp, sem fjall-
ar eingöngu um skattd/ögur eða tekjur og útgjöld landsins, né
heldur breytt nokkru slíku frumvarpi, né heldur getur efri-
deild breytt nokkru frumvarpi í þá átt, að auka þau gjöld eða
byrðar á þjóðinni, sem upp á hefir verið stungið.
(4) Ekkert fjárlagafrumvarp skal fást við nein önnur efni en
tekjur og útgjöld hvers árs.
11. gr. (1) Ef neðrideild lra samþykkir lagafrumvarp og efri-
deild fellir það eða lætur vera að samþykkja það, eða samþykkir
það með breytingum, sem neðrideild vill ekki fallast á, og ef
neðrideild á næsta þingi aftur samþykkir frumvarpið með eða án
nokkurra breytinga, sem gerðar hafa verið eða fallist á af efri-
deild, og efrideild enn fellir frumvarpið eða lætur vera að sam-
þykkja það, eða samþykkir það með breytingum, sem neðrideild
vill ekki fallast á, þá getur landstjórinn á því sama þingi stefnt
til sameinaðs þings af þingmönnum beggja deilda.