Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Side 40

Eimreiðin - 01.05.1913, Side 40
114 og hvaða möguleikar eru hugsanlegir og framkvæmanlegir. En hann hefur nú þegar gert stórmikið gagn með strangari kröfum viðvíkjandi blóðstöðvun og ígerðarvörn við holdskurði, en hingað- til hefur verið álitið nauðsynlegt. Hann hefur og sýnt fram á, að kvikskurður (vivisection) er alveg nauðsynlegur milliliður í flest- öllum vísindalegum tilraunum, er snerta skurðlækningar. Carrel er ungur maður og má sjálfsagt enn mikils af honum vænta. Næturljóð. Um miðja nóttu, sorg og sjúkur tregi er svefni stela mér úr þreyttri lund, þá leitar hugur heim um langa vegi og hjartað dvelur myrka vökustund við hól og dal og háls og á og grund, þars halur ungur gekk og vissi þeygi, að seinna beið hans bak við höf og sund. mörg blöskurnótt á eftir þungum degi. Hve alt er breytt og fjarlægt! — þér á fund ég fer, mín æskubygð, og geng um stund sem ungur smali sæla sumarvegi, og bind úr fíflaleggjum langa sveigi. — — Alt líf er draumur guðs, er hné í blund — og mismun svefns og vöku sé ég eigi. GUNNAK GUNNARSSON.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.