Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Blaðsíða 59

Eimreiðin - 01.05.1913, Blaðsíða 59
133 En allir englarnir titruðu af ótta fyrir reiði guðs almáttugs, sem óx æ meir, er hann talaði við konurnar, hverja á fætur ann- arri. Og þó þær allar hefðu verið dregnar á tálar af Don Júan á jörðunni, þá sögðu þær nú allar frammi fyrir guði, að þær væru búnar að gleyma því. Pá upphóf guð raust sína og snéri sér að lokum að Don Júan: »Enda þótt þessar góðu sálir hafi fyrirgefið þér syndir þínar, eru þær þó skráðar í bók mína. Og því skal þér verða útskúfað í hin eilífu myrkur ásamt með bræðrum þínum, en það eru morðingjar og meinsærismenn.« Tveir englar þrifu þá Don Júan, til að flytja hann niður í hin yztu myrkur, en í sömu svipan fleygði Donna Elvíra sér á kné fyrir fótskemil guðs og hrópaði hágrátandi: »Guð almáttugur! frelsaðu hann, frelsaðu hann!« Og Donna Annúnzíata — og allur sá flokkur ungra kvenna, sem Don Júan hafði sært og svívirt á jarðríki, þær þyrptust saman og féllu á kné fyrir dómstóli guðs og báðu allar grátandi: »Frelsaðu hann, frelsaðu hann!« Og guð almáttugur horfði á þær og undraðist mikillega: »Segið mér þá, hversu það má ske, að þið hafið gleymt öllum þeim hörmum, sem hann' olli ykkur, og hversvegna þ'ið viljið endurgjalda smán hans og svívirðu með himneskri sælu.« Pá tók Donna Elvíra fyrst til orða með mikilli auðmýkt fyr- ir augliti guðs: »Faðir vor — þjáningar mínar voru einskisvirði, einskisvirði í samanburði við fullsælu þá, er hann veitti mér, þó um stutta stund væri. Jafnvel þá, er neyð mín var stærst, var ég þó sælli en á fyrri árum, áður en ég kyntist honum; og þegar ég leitaði á náðir dauðans, var það í von um, að geta dreymt um hann í hinum eilífa svefni.« þá talaði Donna Margueríta della Varenza fyrir augliti drott- ins: »Hann er sá, sem gaf mér auð og allsnægtir á jarðríki. Dagar mínir voru auðn og dimma, áður en hann birtist mér; en þegar hann snart mig, opnaðist mér dýrðlegur undraheimur. Hví skyldi ég þá eigi syrgja, er hann hvarf mér, og hví skyldi ég eigi stinga augu mín út, er þau aldrei fratnar gátu séð hann, sem var eftirlæti mitt á jörðu. Nei, enginn, enginn hefur veitt mér slíka blessun og hann.« Pá talaði Donna Annúnzíata fyrir augliti drottins, og spenti greipar með miklum fjálgleik: »Heyr mig, drottinn! Mín var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.