Eimreiðin - 01.05.1913, Page 4
7»
inn, fyrir hönd konungs, fara með öll þau einkaréttindi konungs
eða annað framkvæmdarvald, sem konungur kann að fela honum.
(3) Vald þetta skal framkvæmt af þeim írskum stjórnardeild-
um, er stofnaðar kunna að verða meb írskum lögum, eða þá, ef
það bregzt, af landstjóranum, og landstjórinn má skipa embættis-
menn til að stjórna þessum stjórnardeildum, og skulu þeir halda
embætti svo lengi sem landstjóranum þóknast.
(4) Peir menn, sem eru sem stendur forstjórar slíkra stjórnar-
deilda, sem ákveðnar kunna að verða með írskum lögum, eða, ef
öll ákvæði um það vantar, af landstjóranum, og þeir menn aðrir
(ef þeir eru nokkrir), sem landstjórinn kann að skipa, skulu vera
ráðherrar írlands.
Að því tilskildu:
(a) að enginn skal vera ráðherra írlands, nema hann sé
meðlimur í ríkisráði írlands; og
(b) að enginn skal halda embætti sem ráðherra írlands leng-
ur en 6 mánuði, nema hann verði þingmaður í annarrihvorri
deild alþingis íra; og
(c) að hver sá maður, sem ekki er forstjóri írskrar stjórnar-
deildar, skal halda embætti sem ráðherra írlands svo lengi sem
landstjóranum þóknast, á sama hátt eins og forstjórar stjórnar-
deildanna halda sínum embættum.
(5) feir menn, sem eru sem stendur ráðherrar írlands, skulu
vera framkvæmdarstjórn rfkisráðs írlands (í þessum lögum nefnd
»framkvæmdarstjórnin«), tii þess að aðstoða landstjórann og leið-
beina honum í meðferð hans á framkvæmdarvaldinu, að því er
snertir sérmálastjórn Irlands.
(6) »Sérmálastjórn íra« táknar í lögum þessum stjórn allra
borgaralegra mála á Irlandi, nema þeirra mála, er alþingi íra
hefir ekki vald til að setja lög um, og nær sú undanþága einnig
til stjórnar hinna svonefndu »undanskildu málefna« (2. gr., 11) (í
þessum lögum nefnd »undanskilin stjórnarmáU).
5. gT. (1) Yfirstjórn ríkislögreglunnar á írlandi skal sam-
kvæmt leyfi þessara laga flutt frá samstjórn Breta til sérstjórnar
íra eftir 6 ára bil, og hættir þá að vera undanskilið stjórnarmál, en
verður írskt stjórnarmál.
(2) Verði ályktun samþykt í báðum deildum alþingis íra um
að flytja frá samstjórn Breta til sérstjórnar íra þau undanskilin
stjórnarmál er hér segir: