Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 10

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 10
84 • VI. DÓMSVALDIÐ. 27. gr. Dómarar í hæstarétti eða öðrum yfirdómum á Ir- landi eða héraðsdómum skulu, eftir að l'óg pessi hafa gengið í gildi, skipaðir af landstjóra, og halda embætti eftir sömu reglum, eins og nú gilda; og meðan þeir eru í embætti, má ekki minka laun þeirra né eftirlaunarétt án samþykkis þeirra. 28. gr. (i) Áfrýjanir frá dómstólum á írlandi til lávarðadeild- arinnar (efrideildar) skulu hætta; og þar sem einhver mundi, ef þessi lög hindruðu eigi, hafa átt rétt á að skjóta máli sínu frá írskum dómstóli til lávarðadeildarinnar, pd skal hann eiga sama rétl d að skjóta mdli sínu til konungs í ríkisrdði, og gilda þá öll hin sömu lagaákvæði, sem annars gilda um málskot til kon- ungs í ríkisráði og um dómnefnd ríkisráðsins. (2) Pegar dómnefndin situr til að hlýða á áfrýjanir frá dóm- stólum á Irlandi samkvæmt ákvæðum þessara laga, skulu við- staddir eigi færri en 4 yfirdómarar og að minsta kosti 1 dómari, sem er eða hefir verið dómari í hæstarétti á Irlandi. (3) Konungur skal árlega halda dómfund í ríkisráði, til að hlýða á áfrýjanir frá dómstólum á Irlandi, og skulu þá meðlimir ríkisráðsins, eða sumir þeirra, sitja þann dómfund, til að hlýða á téðar áfrýjanir. Sæti á dómfundinum, sem losna af tilviljun á ár- inu, má fylla með konungsúrskurði. (4) Ekkert í þessum lögum skal hafa áhrif á vald lávarða- deildarinnar til að dæma um rétt til lávarðatignar á írlandi. 29. gp. (1) Ef landstjóra eða ráðherra virðist það áríðandi fyrir almennings hag, að ráðstafanir sé gerðar til skjótrar úrlausn- ar á þeirri spurningu, hvort írsk lög eða frumvörp, eða einstök dkvœði peirra, fari út fyrir valdsvið alpingis íra, getur hann borið hana upp fyrir konung í ríkisráði, og skal þá téð spurning jafnharðan upp borin og úrskurðuð af dómnefnd ríkisráðsins, og sé hún þá skipuð á sömu lund og við áfrýjanir frá dómstólum á írlandi. (2) þegar spurningin er prófuð, má leyfa þeim mönnum, sem dómnefndin álítur málið skifta miklu, að mæta í dómsalnum og hlýða á þá sem dómsaðila, og úrskurður dómnefndarinnar skal feldur á líkan hátt og um úrskurð í áfrýjuðu máli væri að ræða, og fyrir opnum dyrum frá því skýrt, í hverja átt skýrsla hennar eða tillögur til konungs fari. (3) Ekkert í þessum lögum skal að neinu öðru leyti hnekkja

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.