Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 13

Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 13
«7 ríkisráði, og þá um málin fjallað af dómnefnd ríkisráðsins. Bretar hafa því jafnan töglin og hagldirnar, að því er kemur til síðustu dómsúrslita. Hvað mundu Islendingar hafa sagt, ef Danir hefðu reynt að bjóða þeim aðra eins heimastjórn og þetta? Þeir hefðu víst fengið orð í eyra, og engum íslendingi dottið í hug við henni að líta. Og þó er frjálslyndið hjá Englendingum ekki meira en svo gagnvart Irum, að þeir vilja ekki einu sinni unna þeim þessarar heimastjórnar, hvað þá heldur meiri. Pað tekst reyndar að merja frumvarpið gegnum neðrideild, en þar eru þó ekki færri en 258 þingmenn á móti því. Og þó atkvæðamunurinn virðist allálitlegur, 110 atkvæði, þá er aðgætandi, að af þeim eru 103 atkvæði Ira sjálfra, sem eiga sæti á þingi Breta. Af Englendingum og Skot- um eru ekki nema 7 atkvæðum fleira með frumvarpinu en móti því. Og í efrideildinni er frumvarpið undireins felt með svo mikl- um atkvæðamun, að þar eru 257 atkvæðum fleiri á móti því en með því (326 : 69). Pað getur verið lærdómsríkt — og meira að segja heilsu- samlegt — fyrir skilnaðarmennina íslenzku, að bera þetta saman við heimastjórnarlög vor og framkomu Dana gagnvart frekari sjálfstjórnarkröfum af vorri hálfu. Vér álítum óþarft að fara frekar út í þann samanburð í einstökum atriðum. Hver, sem hefir stjórnarskrá vora og sambandslaga-uppkastið frá 1908, getur gert það sjálfur. Pað Hggur svo opið fyrir, hvílík kostakjör oss eru boðin af Dana hálfu, á móts við þau kjör, sem Irar vilja fegnir þiggja» en ekki einu sinni /á. y q þýtt og frumkveðið. I. Á JÁRNBRAUTINNI1. (Eftir PETÖFI). Finn ég streyma um hjarta oghug Fuglar áður flugu aðeins, sem hafsjó gleði ríka: nú fljúga menn þá líka. 1 Fetta var oit á næstliðinni öld, þegar járnbrautir voru að bytja. Hvað mundi skáldið hafa sagt nú, hefði það lifað og séð loftskip og flugvélar vorra daga ?

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.