Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 23

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 23
97 »Og það er nú ekki verið að kæra sig um það — nú á tím- um«, svaraði Stefán og sneri herfilega upp á sig. »Pað er nú bráðum komið svo, að það er ekki nema þá dagana, sem kaupið er útborgað, að húsbændurnir vita, hvort þeir hafa nokkur hjú eða engin. Jú, ég mintist á það við hann, að teyma fáeina gripi á beit, áður en hann færi. Pað fanst mér nú ekki vera að ofbjóða hon- um, þegar hann svo fær allan daginn til að leika sér. Lestin fer hvort sem er ekki fyr en eftir einn eða tvo tíma, eða sem því svarar; og þó hann nú yrði að flytja nokkrar beljur og reka fáeinar kindur, áður en hann kemst í sollinn — burt frá öllu saman —, þá ætti hann líklega samt að geta fengið nægan tíma til að koma því af, sem honum er ætlað. Mér dett- ur svei-mér ekki í hug að heimta neitt ósanngjarnt af stráknum; ef hann bara vildi taka kálfana með sér upp á Suðurheiði, þá mundi ég láta mér það nægja; og það er þó ekki neinn sérlegur krókur.« »Já, með guðs hjálp vinst honum líklega tími til pess, ef þá ekki verður neitt annað af honum heimtað«, sagði Anna Marja með mesta hæglæti; »en þá verðurðu líka sannarlega að hafa hraðann á Nonni minn!« Stefán hafði nú fengið sitt fram, og hvarf þá, án þess að kveðja, út úr fjósinu, en Jón litli fór að klæða sig. »Komdu nú fram að brynningatroginu og þvoðu þér almenni- lega, svo þú verðir hreinn ; og mundu eftir eyrunum« áminti Anna Marja. »Pað er mikið, hvað þú hefir getað gert pd gljáandi*, hélt hún áfram, og benti á skóna hans, sem hann hafði burstað eins vel og hann gat kvöldinu áður og sett fyrir framan rúmið. »Heldurðu nú ekki að snjallast væri að bera bæði þá og nýju sokkana á bakinu, þangað til þú ert sloppinn við kálfana; annars verða þeir allir útataðir af dögg og óhreinindum.« Fám mínútum síðar var Jón litli búinn að tengsla saman kálfana og stóð nú á hlaðinu með nýju sokkana og skóna sína fagurgljáu hnýtta um öxl. Hann var beinlínis orðinn reglulega vel til fara, eins og hann stóð þarna nýþveginn. Spánnýtt slipsi, sem móðir hans hafði haft í vasanum handa honum, gerði honum tíð- litið niður fyrir hökuna, og hann var auðsjáanlega upp með sér

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.