Eimreiðin - 01.05.1913, Qupperneq 32
helztu veiðistöðvarnar norður af íslandi, við austurströnd Græn-
lands, norður af Noregi, við Spitzbergen, og við Nova Semlja.
Um aldamótin fækkuðu Norðmenn veiðiskipum sínum, enda
hafði hvorttveggja borið að í senn: veiðin gengið illa, og skinn
og lýsi lækkað í verði. En síðustu tíu árin hafa þeir á ný fjölgað
veiðiskipunum; hefir veiðst vel, og skinn og lýsi verið í góðu
verði.
Selveiðina ráku árið 1911 — síðasta árið, sem skýrslur eru
til um — 86 skip frá Norður-Noregi. Flest voru þau smá seglskip,
30 til 50 smálesta, og voru 8—14 manns á hverju. Sum skipin
höfðu hjálparvél, ýmist mótór eða gufuvél. Skipin lögðu af stað
í byrjun aprílmánaðar og voru til jafnaðar 4 mánuði við veiðina.
Meðalafli á skip var 8 þúsund króna virði (sami afli var og þrjú
árin þar á undan).
Af þessum 86 skipum stunduðu ekki nema 10 skip veiðina
norður af Islandi og við austurströnd Grænlands, og er þó þar
sagður mestur selurinn. En það er helzt til langt þangað úr Nor-
egi, til þess að smáskip geti stundað veiðina þar með vel góðum
hagnaði. Aftur á móti er áhættan meiri með stór skip, en ágóð-
inn einnig stærri, þegar vel gengur.
Auk þeirra 10 skipa, er nefnd voru, stunduðu veiðina á sömu
slóðum 4 stór skip (gerð út úr Suður-Noregi), og höfðu þau, auk
áhaldanna til selveiða, áhöld til andarnefjudráps, og stunduðu
hvoratveggju veiðina, og voru 45 manns á hverju þeirra. Þau
lögðu af stað að heiman fyr en minni skipin — í marzmánuði.
Eins og fyr var getið, er áhættan við útgerð stóru skipanna meiri.
Má til nefna veiði gufubarkskipsins »Björn«:
Árið 190; veiddi það 8000 seli og 75 andarnefjur.
— 1906 — — 7800 — — 80 —
— 1907 — — 6800 — — 47 —
Veiðin árið 1907 var talin 111 þús. kr. virði, en hreinn á-
góði af útgerðinni 60—70 þús. krónur. En árið 1911 veiddist svo
lítið á »Björn«, að útgerðin bar sig ekki.
Þegar illa gengur veiðin, er ástæðan sjaldnast sú, að selinn
vanti, heldur annaðhvort ilt tíðarfar — stormar og illviðri — eða
þá að hafísinn er svo þéttur, að ekki er hægt að koma bátum
við; en blöðruselurinn er svo styggur, að ekki verður komist að
honum nema á bátum. Að vöðuselnum má aftur á móti oft
komast gangandi, og drepa með barefli, einkum kópana. Full-