Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 34

Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 34
io8 eru ekki sjófærir fyr en þeir hafa stálpast nokkuð. Hreki illviöri þá í sjóinn, drukna þeir. Vöðuselurinn er nú fremur sjaldgæfur við ísland, en fyrir 40—50 árum kom hann i svo þéttum vöðum til landsins, að það þótti — að minsta kosti við Eyjafjöið—skömm að skjóta hann1. Að ströndum Noregs hefir hann komið við og við í stórhópum, og voru einkum brögð að því veturinn 1901 —1902. Komu þá ógrynni af honum austan úr Hvítahafi og fóru suður með Noregi, og eyðilögðu fiskiveiðar Norðmanna. V. ANDARNEFJUVEIÐAR. Pær ráku Norðmenn af 42 skipum árið 1908 og voru veiði- stöðvarnar einkum þessar: Við Spitzbergen, fyrir suðvestan Jan Mayen, austan undir Grænlandi, sunnan við Reykjanes, fyrir austan Færeyjar og við Langanes. Af þessum 42 skipum voru 13 frá Álasundi, og skal hér skýrt frá veiðiskap þeirra. Skipin voru seglskip, 50—90 smálesta, og höfðu sum þeirra hjálparvél. Skipshöfnin 14 manns. Veiðin byrjaði í aprílbyrjun og hætti um júlílok. Samtals veiddust 421 andarnefja, og fékst af þeim 346 smálestir af lýsi, og var öll veiðin talin 166,700 kr. virði. Sum skipin höíðu bræðsluáhöld innanborðs. Árið eftir (1909) ráku veiðina 15 skip frá ÁlasundL Veiddust 388 andarnefjur, og fékst af þeim 358 smálestir af lýsi og fékst fyrir það 182 þús. kr. Seldisl hver lýsissmálest á 470 til 53° kr. Árið 1910 ráku veiðina 13 skip, og veiddust 349 andarntfjur, 186 þús. kr. viröi. Aðalveiðistöð þessara skipa var við Langar.es, og þaðan í áttina til Færeyja. Andarnefjan heldur sig oftast í flokkum, 3—12 í hverjum. Hún hefir þann sið, sem öfugur er við sið annarra hvala, að hún syndir æfinlega að skipum, sem hún sér (líklega af forvitni), og léttir það veiðina að mun. Oft hefir þó hjálparvélin komið þeim skipum vel, er hana höfðu, því oft sjá skipverjar andarnefjuflokk svo langt burtu, að dýrin sjá ekki skipið, og er þá siglt í veg 1 Selaskyttur við Eyjafjörð hafa enn í dag skutul með sér í bátnum, og skutla selina skotna.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.