Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Side 38

Eimreiðin - 01.05.1913, Side 38
I I 2 með yfirflutning (transplantation) af heilum líffærum. En sama árið fékk hann stöðu við Rockefeller-stofnunina í Chícagó, sem er álíka rannsóknastofnun og Pasteur-stofnunin í París. Par fékk hann þá beztu hentugleika, sem hugsast geta, til að gera tilraunir sínar, enda urðu þær og djarflegri ár frá ári. Ein af fyrstu tilraunum hans þar var að skera nýra úr hvolpi og sauma það aftur á milli hálsvöðva hans, undir hörundið. Hann sameinaði nýrnaslagæðina við slagæð höfuðsins (carotis) og sömu- leiðis blóðæð nýrans og höfuðblóðæð hálsins (vena fugularis), en þvaggöngin lét hann mynna út í vélindið. Petta yfirflutta nýra starfaði svo vel, að meira þvag kom úr því en hinu, sem var á sínum rétta stað. Orsökin til þessa hefir sennilega verið sú, að meira blóð streymdi gegnum yfirflutta nýrað, svo að þvagmynd- unin varð sterkari í því. — Seinna gerði Carrel fjölmargar á- þekkar tilraunir og yfirflutti oft bæði nýrun ásamt þvaggöngum og hluta af blöðrunni til fjarlægra hluta líkamans. Sömuleiðis hef- ur hann yfirflutt eggjastokka og eggjaleiðara ásamt tilheyrandi taugum og bióðkerum, og hepnuðust þær tilraunir oftast nær líka, Ein af tilraunum hans var að lækna hund, sem þjáðist af sjúkdómi þeim, er nefnist myxödem og orsakast af bólgu eða ofvexti í eitli þeim á hálsi spendýra, er nefnist skjaldbrjóskeitill (glandula thyroidea). Carrel saumaði saman blóðæð eitilsins og slagæðina (carotis) á hálsi hundsins. Petta hjálpaði seppa, sem áður hafði verið sljór og sköllóttur, og þjáður af offitu og svefn- sýki og öllum öðrum einkennum, er fylgja »myxödem«. Eftir aðgerðina lifnaði hundurinn við, hár hans tók að vaxa, og hann varð megri, enda þótt hann æti miklu meira en áður; og loks varð hann svo fjörugur og ólmur, að menn urðu að loka hann inni í klefa, því annars átti hann í látlausum illdeilum og áflogum við aðra hunda. Carrel hefur hepnast að skera skemda og sjúka hluta, margra þumlunga langa, úr slagæðum og sauma inn í slagæðarnar hluta af blóðæðum, annaðhvort frá sama einstakling eða þá frá öðru dýri af sömu tegund. Petta hefur vanalega hepnast vel, jafnvel þótt hinir yfirfluttu blóðæðahlutar hefðu verið geymdir í 3—4 vikur. Árið 1908 tókst Carrel að yfirflytja heila útlimi frá einum hundi til annars. Hann saumaði hvert einstakt vefjarlag útlimsins við samskonar lag á móttökudýrinu, eða með öðrum orðum: saumaði saman bein, beinhimnu, blóðæðar, slagæðar, taugar,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.