Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 39

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 39
vöðva, vöðvaskeiðar og hörund, hvert fyrir sig, með hinni mestu nákvæmni. Eftir 3 ldukkustundir kom náttúrleg og eðlileg blóð- rás í hinn yfirflutta útlim. Hundurinn dó að vísu eftir 20 daga af lungnabólgu, en sem ekki orsakaðist af aðgerðinni (»óperatióninni«). Fyrir tveimur árum síðan hóf Carrel tilraunir sínar með lækningaaðferðir við sjúkdóma og meinsemdir í hjartanu og hjarta- slagæðinni (aorta). Við þær tilraunir notar hann sérstakar aðferðir er hann hefur sjálfur fundið upp, til þess að viðhalda blóðrásinni og andardrættinum, meðan á aðgerðinni stendur, og er það alveg dæmalaust og í hæsta máta aðdáunarvert, hve margar jafnhættu- legar tilraunir hafa hepnast fyrir Carrel. Honum hefur þannig tek- ist að búa til göng frá vinstra hjartahólfi til hjartaslagæðar brjóst- holsins (aorta descendens), og notaði í þau hluta af höfuðblóðæð hálsins (vena jugularis). Hann hefur einnig gert aðgerðir til að bæta úr þrengslum í hjartamynnunum (mitralstenosis, aortasten- osis og coronalstenosis). Ennfremur hefur hann skorið burt mein úr veggjunum innan í hjartanu og saumað saman sködduð hjarta- speldi, og skorið burt meinsemdir, er í þeim sátu. Carrel segir þó að dánarhlutfallið við þessa holdskurði sé mjög hátt, og ræð- ur því frá að gera þá á mönnum enn sem komið er. Nú upp á síðkastið hefur Carrel mest gefið sig að ræktun á holdi, sem ekki nærist af eða stendur í sambandi við lifandi verur. Lífinu í þessum holdbitum, sem oft eru stykki af æxlum eða meinum, viðheldur hann í næringarvökvum, einkum blóðvatni (serum) úr hlutaðeigandi dýri. Hefur honum á þennan hátt hepn- ast að láta bandvef, brjósk, bein, lífhimnu, blóðker, miltis og nýrnavef vaxa og dafnast. Hann athugaði vöxtinn í smásjá og komst að raun um, að frumlumyndun átti sér stað í tilraunabit- unum. Fyrst mynduðust bandvefsfrumlur, en seinna frumlur á hærra stigi, t. d. hörunds og eitlagangsfrumlur. Við ræktunartil- raunir þessar gerði hann þá athugun, að krabbamein, t. d., vex fljótast í blóðvatni úr sama dýri, sem meinið er úr, en miklu seinna í blóðvatni úr hraustu dýri, og alls ekki í blóðvatni úr öðru krabbasjúku dýri. Enn sem komið er eru flestar tilraunir Carrels ekki nema fagrir framtíðardraumar, sem þó geta ræzt einhverntíma. En hann hefur álíka þýðingu fyrir nútíma-skurðlækna, eins og riddaralið fyrir landher, sem ætlar að leggja til orustu. Hann kannar víg- völlinn, er langt á undan nútímanum og rannsakar, hvaða leiðir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.