Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 52

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 52
I2Ó af því, að þá var ekki •um aðra skóla að ræða á íslandi en latínu- skólann í Rvík, en samgöngur þangað svo margfalt örðugri en við Danmörku. Og þó var nú ferðalagið þangað ekki greiðara en svo, að þessi 30—40 lesta seglskúta, sem flutti hann í skólann, sigldi frá Eskifirði í júlímánuði, og kom þó ekki til Khafnar fyr en í september! Máske hefur það einmitt verið þetta ferðalag, sem vakið hefur hjá unglingnum f’. T. tilfinninguna fyrir því, hve hörmulegar íslenzkar sam- göngur væru, og jafnframt þá hugsun, að yrði hann einhverntíma að manni, þá skyldi hann verja kröftum sínum til að bæta þær. Eftir að f’. Tulinius 1875 hafði lokið gagnfræðaprófi við Hróars- kelduskóla, var hann 4 ár við verzlun P. F. Lagonis í Faaborg, sem þá mun hafa verið stærsta verzlunin á Fjóni. Árin 1879—1887 var hann ýmist við verzlun föður síns á Eskifirði eða í útlöndum, meðal annars til að ganga á verzlunarskóla. Á því tímabili var hann og um hríð (1883) aðstoðarmaður í Prívatbankanum í Khöfn (undir stjórn C. F. Tietgens), til þess að kynnast bankastörfum. Ennfremur dvaldi hann og einn vetur í Noregi, til þess að kynna sér síldveiðar og verk- un og meðferð á síld, enda hafði faðir hans orðið fyrstur til að byrja síldveiðar í nætur á íslandi (1879), sem jafnan hafa síðan verið reknar. Árið ^887 flutti f’. T. alfarinn til Khafnar og var hann þá fyrst í 2 ár við smjörútflutningsverzlun G. Noacks og annaðist þar bréfa- viðskifti verzlunarinnar við enska viðskiftamenn, unz hann 1889 hóf umboðsverzlun sína og stórkaupa, sem hann jafnan síðan hefur rekið jafnframt eimskipaútgerðinni. En borgarabréf sem stórkaupmaður keypti hann sér r3. sept. t888, og eru því í ár einmitt 25 ár síðan, og 50 ár síðan faðir hans stofnaði verzlun hans á Eskifirði. Hinn 7. júlí 1890 kvongaðist í\ Tulinius Helgu Frich, dóttur vélaverksmiðjueiganda Frichs í Árósi, og eiga þau 5 börn á lífi: 1 son, Finri (f. 1893), stud. theol., og 4 dætur, Birgit (f. 1895), Helgu (f. 1897), Ingibjörgu (f. 1900) og Elísabetu (f. 1902). Er heimili þeirra hjóna hreinasta fyrirmynd og sér þar á, að Tulinius er vel giftur. f>ví þó T. sé sjálfur ágætis húsbóndi, þá leynir stimpill frú Helgu sér ekki á heimilinu og uppeldi barnanna, og ber þess ljóst vitni, að hún er fyrirtakskona. Þar er alt svo frjálst og látlaust, laust við alla tilgerð og tildur og lifnaðarhættir allir svo heilbrigðir, bæði llkamlega og andlega. Gestrisni er þar mikil, og eru þar allir íslend- ingar boðnir og velkomnir. Þjóðernistilfinningin á íslandi er sterk, og menn hafa þar næma tilfinningu fyrir því, hvort þeir synir þess, sem í útlöndum dvelja, halda ættarmótinu og ræktarþeli sinu til landsins, eða umskapast svo af útlendum áhrifum, að þeir sgleyma henni móður sinni«, eins og stundum hefur viljað við brenna. Þ. Tulinius hefur jafnan sýnt, að hann hefur viljað reynast sannur og góður íslendingur, og að hann »hefur aldrei gleymt henni móður sinni«, eins og skáldið (G. G.) kemst svo fagurlega að orði i kvæði sínu. Og það er víst eigi sízt fyrir það, að skáldið lætur Fjallkonuna kalla Tulinius »einn af sínum kærstu og beztu sonum«, þótt hún gleymi heldur eigi hinu, að hann sé einn af þeim fáu af sonum landsins, sem sýnt hafa ást sína til

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.