Eimreiðin - 01.05.1921, Page 105
EIMREIÐIN]
RÓMANTlK
233
»dularfullra drauma«; — við »undarlegan grun og við-
kvæman hugblæ« í djúpi sálar sinnar fyllist maðurinn
»hinum leyndardómsfulla anda lífsins«, titrar í sæluhrolli
við að finna sjáltan sig sameinast heimssálinni; fölvir,
göfugir æskumenn ganga út i lífið með stórum, undrandi
augum, sem stara inn í hverfandi fjarskann; þeir sjá ekki
veruleikann í kringum sig, en þá grunar að eins heiminn
gegnum fölva rökkurmóðu fagurs draums; þeir eru eins
og saklaus börn, sem svifa á vængjum ímyndunaraflsins
inn í álfaheim æfintýranna eða langt í burt til Austur-
landa, hins rétta heimkynnis allra kynjahluta. Veiklulegir
og stórgáfaðir, áhugalausir um starfsemi lifsins, fullir
angurblíðu og löngunar, reika þeir í draumleiðslu um
fornþýzkar rústir — um mánaskins-sveitir, unz þeir hníga
loks niður við altarið í katólskri kapellu og krjúpa þar
á kné, hrifnir og frá sér numdir, fyrir framan krossfest-
ingarmynd á allaristöflu frá tímanum á undan Rafael, —
en gegnum sál þeirra ólgar fjálgleikur kirkjusöngsins á
miðöldunum.
t*essi síðarnefndu orð eru öll sótt í »rómantiskar« bæk-
ur; og með »rómantík« á eg þá við þann smekk, þann
sálarsvip og andaeinkenni, sem ríktu á timanum um
næst-síðustu aldamót — eða, svo að eg nefni einhver ár-
töl, — frá 1790 og nokkra áratugi inn í 19. öldina —
með nokkuð misjöfnum tímatakmörkum í ýmsum lönd-
um — alt fram að 1860 —, svo að hér um bil má segja,
að rómantíkin nái frá upplýsingaröldinni annars vegar, og
að tímabili Darwins hins vegar. — Nú vil eg reyna að
veita nokkra hugmynd um hinar venjulegu stefnur í
rómantikinni og nem þá fyrst staðar við Pýzkaland, þar
sem ef til vill er ekki unt að segja að hreyfingin hafi átt
upptök sin, en þar birtist hún að minsta kosti í sérkenni-
legustum myndum.
Eðlilegasta leiðin til þess að gera sér hugmynd um
rómantikina er sú, að bera hana saman við fyrirrennara
hennar, upplýsingaröldina. — Eins og auðsætt er af
samanburði þeim á »slagorðum« beggja tímabilanna, sem
við gerðum áðan, er andstaða upplýsingar og rómantikur