Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 29
EIMREIÐIN)
PJÓÐGARÐAH
285
garðinum, enda er þar feiknamikill ferðamannastraumur
að sumrinu.
Þjóðgarðarnir eru alveg óviðkomandi skógræktarstjórn
ríkisins. Þeir heyra undir sérstaka stjórnardeild, — þjóð-
garðsskrifstofu, í Washington, sem annast um þá að öllu
leyti, og alt, sem þá snertir. Skógrækt, eins og hún er
venjulega framkvæmd, á sér ekki stað í þjóðgörðunum,
enda væri þar þá ekki algerð náttúrufriðun. þrátt fyrir
það eru skógræktarmenn fastir starfsmenn í görðunum;
er starf þeirra alt annað en að grisja skóg, sá eða planta.
Að þeir eru teknir fram yflr aðra menn, stafar at þvi, að
ætlast er til að þeir hafi meiri þekkingu á skógargróðrin-
um og starfi náttúrunnar yfir höfuð, en almenningur. í
Gulasteins-þjóðgarðinum hafa þeir þó verið látnir grisja
örmjótt skógarbelti meðfram aðalvegunum, en hvergi
annarstaðar; er þó 85°/o af þjóðgarðinum skógi vaxið, og
víða er skógurinn afar þéttur. Skógræktarmennirnir eru á
verði fyrir skógareldi. það kemur fyrir, að kviknar í skóg-
inum af eldingu eða vegna óvarkárni manna með eld.
Eru þeir viðbúnir með ýmsum tækjum að koma í veg
fyrir slíkan voða. Náttúran er látin sjálfráð um það,
hvernig hún þroskar gróðurinn og dýralífið. Mennirnir
eiga einungis að sjá um friðunina; þeir eiga að vera
nokkurskonar verndarvættir, sem bægja frá öllu, sem
skemmir og eyðileggur starf náttúrunnar. Þó hafa ferða-
menn ekki verið sviftir þeirri ánægju, að veiða silunga á
stöng í ám og vötnum, en takmörkun er sett fyrir því,
hvað hver einstakur má veiða marga fiska á dag, og
hve stóra. Nákvæmar reglur eru settar fyrir garðana, og
gengið eftir að þeim sé stranglega fylgt.
Aðsókn að þjóðgörðunum er afskaplega mikil. Tugir
þúsunda ferðamanna ferðast um þá árlega og skilja þar
eftir ógrynni fjár. Ferðafýsn Ameríkumanna er mikil. Þeir
láta sér ekki nægja, að ferðast um sitt eigið land og
skoða það, heldur fara þeir líka til annara heimsálfa.
Árið næsta á undan heiinsstyrjöldinni eyddu Bandaríkja-
menn 286 miijónum dollara í ferðalög til Evrópu. Sama
árið voru tekjur af ferðamönnum í Sviss 100 miljónir