Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 90
[EIMREIÐIN
Gyldendals bókaverslun
1770—1920.
Arið 1920 hélt Gj'ldendals bókaverslun, stærsta bóka-
forlag á Norðurlöndum, 150 ára afmæli sitt, því að það
var árið 1770, að fyrsti stofnandi hennar, Sören Gjdden-
dal, bjrrjaði að versla. Enginn getur neitað, að þessi bóka-
verslun hefir haft mikil og margvísleg áhrif á andlegt líf
Norðurlanda. Hún var lítil í fyrstu, en
gerðist, er fram liðu stundir, heljarbákn,
sem náði langar leiðir út fyrir takmörk
heimalandsins.
Sören Gylclendal var kandídat í guð-
fræði, en komst inn á þá braut að
versla með bækur, líklega upphaflega á
bókauppboðum, og jókst verslunin brátt
svo, að hann keypti sér bús í Silkegade,
árið 1776. 1787 fluttist verslunin í hin
fallegu húsakynni í Klareboderne, sem enn þá eru heim-
kynni forlagsins. — Sören Gyldendal er eiginlega fyrsti
forleggjari í Danmörku. Hann hafði langt um fleiri skilyrði
til þess, að það gæti blessast í höndum hans, en aðrir
bóksalar á hans dögum. Hann var afbragðs vel að sér,
var nákunnugur andlegu lífi samtiðar sinnar, hafði ágæt
sambönd við ritfærustu menn, og var auk þess röskur og
mjög fær kaupsýslumaður. Hann var ekki Iengi að kom-
ast í fremstu röð, lagði ótrauður út í djarfleg stórvirki,
og áður en nokkur vissi, var litla bókaverslunin hans
orðin að stærðar bókaforlagi. Honum tókst að knýta ýmsa
af ágætustu rithöfundum þeim, sem uppi voru, við bóka-
forlagið, en þó hefir honum vart komið til hugar, að það
yrði eins víðfrægt og umfangsmikið og það nú er. Hann
veitti fyrirtækinu forstöðu í 32 ár, og gaf út um 1500 rit,
mest á dönsku og ensku: Skáldrit, fræðirit í ýmsum
greinum, söguleg verk og mikið af skólabókum. Má eink-
Sören Gyldendal.