Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 73
EIMREIÐINJ
ORT, EN ALDREI SENT
329
Guð veit hvað hún gerði mér,
gleymdi’ eg stað og líðan.
Eg veit það eitt, að eg er
annar maður síðan.
Venst eg kaldur koma nær
klæðafaldi snóta;
bindast aldrei. Eg og þær
einnar gjalda’ eða njóta.
Andrés Björnsson.
Athugasemdir um kristnitökuna
á íslandi árið 1000.
Því verður varla neitað, að þó að margt liafi verið stór
vel ritað um kristnitökuna hér, árið 1000, þá hefir samt
naumast verið fullnægjandi gerð grein fyrir þeim fáheyrða
viðburði. Og sýnist það þá helst hafa bagað, að menn
hafa ekki miklað nóg fyrir sér það kynlega við atburðinn,
og því farið yfir hann á hálfgerðu hundavaði í þessu til-
liti. Svo er t. d. um Finn biskup í hinni miklu kirkjusögu
íslands. Hann rekur söguna talsvert greinilega eftir því
sem hann fann gögn fyrir, en víkur varla nokkru orði að
þessu vandamáli, hvernig þetta mátti ske, og má reyndar
segja þetta um sögustíl hans víðar.
Konr. Maurer hefir ritað um kristniboð á Norðurlönd-
um allra manna greinilegast. Það verk er ómetanlegt vegna
þess, hve geysimiklu efni er þar saman safnað, og vegna
yfirburða lærdóms höfundarins. Hann leitar ýmissa ástæðna
fyrir viðburðinum, sem hér er um að ræða. Hann bendir
á ýmislegt í heiðnu trúnni, sem hlaut að greiða kristnu
trúnni braut, svo sem umburðarlyndi heiðinna manna í