Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 96
352
GYLDENDALSBÓKAVERSLUN
[EIMIIEIÐIN
frjáls viðskifti við bóksalana, og það, að hafa bækurnar
sem allra víðast til sölu, í stað þess að bóksalafélagið
hafði fram að 1914 haldið fast við einokunarstefnu, sem
mjög dró úr sölunni. Nú fara bækurnar til aðalumboðs-
mannanna, sem aftur dreifa þeim til allra bóksala og út-
sölumanna. Eina af söludeildum sínum hefir Gyldendal sett á
stofn hér á íslandi. Fer bókaverslun Ársæls Árnasonar með
aðalumboð fyrir Gyldendal og hefir jafnan á boðstólum bæk-
ur forlagsins. Hefir bókaverslun þessi gert allmikið til þess
að gera mönnum kunnar þær bókmentir, sem kostur er á.
Þá hefir önnur nýjung forlagsins verið sú, að selja
bækur gegn aíborgunum um langan tíma. Hefir þessi sölu-
aðferð komið forlaginu í nánari viðskifti við lesendurna
en nokkuð annað og reynst mjög hagfeld. Með þessu geta
þeir, sem ekki bafa þau peningaráð, að þeir geti snarað
út stórum upphæðum, samt sem áður eignast stór verk og
jafnvel heil bókasöfn. Gamla aðferðín var sú, að skrifa sig
fyrir bók, sem var að koma út, og fá hana á löngum tíma
í smáheftum. En nú fær kaupandinn alt verkið þegar
í stað, en borgar svo ákveðna upphæð á hverjum mánuði.
Hve mikið þetta er notað, má sjá af því, að Gyldendal
stendur nú í slíku sambandi við yfir 20,000 kaupendur.
F*að var líka á mjög heppilegum tímamótum, að þessar
nýju umbætur komust á. Bókasöfn voru víða að myndast
og vaxa, og lestrarlöngun allrar alþýðu manna var mikil.
Það kom þá í ljós, að kaupgetan jókst með lönguninni
og að þessar nýju söluaðferðir gerðu mögulegt, að ná til
ótrúlega mikils fjölda.
Þá verður loks að geta um tilraunir Gyldendals til þess,
að koma bókunum sem allra víðast með því, að stofna
útbú í Lundúnum og Berlín.
Útbúinu í Lundúnum stýrir rithöfundurinn Mág. W.
Williamson Worster, og hefir það séð um, að á skömmum
tíma hafa komið út enskar þýðingar á ritum fjölda skandí-
navískra rithöfunda. Hafa þær fengið mjög álitlegar við-
tökur, og vakið lifandi áhuga á skandínavískum bókment-
um. Út hafa komið þar bækur eftir rithöfunda svo sem
Knut Hamsun, Gunnar Gunnarsson, Selmu Lagerlöf, Svend