Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Page 33
Vendilsýsla
33
þýskra og enskra hermanna flutu á sjónum kringum
Skaga eftir orustuna og voru margir þeirra greftraðir
bæði 1 Friðrikshöfn og á Skaga. Stundum komu kaf-
bátar eða fallbyssubátar, er ekki höfðu lækni innan borðs,
með særða menn til spítalanna hjer. Bæði Þjóðverjar og
Englendingar lögðu mörg þúsund tundurdufl í sjó-
inn kringum Vendilsýslu, sem Pjóðverjar urðu að taka
upp aftur, eða eyðileggja samkvæmt Versaillesfriðar-
skilmálunum. Petta verk leystu Pjóðverjar vel af hendi
vorið og sumarið 1920, og höfðu þá margir tugir þýskra
herskipa bækistöð sína í Friðrikshöfn. Hinir þýsku sjó-
liðsmenn hegðuðu sjer mjög vel og fengu að lokum
miklar vinsældir hjer í bæ. Skemti lúðraflokkur þeirra
bæjarbúum oft á kvöldin, og flugvjelar þeirra svifu yfir
baénum og tóku stundum nokkra bæjarbúa með sjer sem
farþega.
II.
Bað er óhætt að fullyrða, að landslag og öll náttúra
Vendilsýslu sje breytilegri og miklu stórfengilegri en nátt-
úra annara landshluta Danmerkur. Frjósöm akurlönd og
miklir skógar liggja í milli hrjóstugra lynghæða eða hvítra
eyðisanda og sandhóla. í Vendilsýslu eru svo háir háls-
ar og hólar að smá fell eða fjöll mætti kalla, og milli
þeirra eru dalir, stundum allþröngir með bröttum hlíðum
en þó oftast breiðir, og eru dalsbotnarnir akrar eða grös-
ugar engjar. Akurlöndin ná oft langt upp eftir hlíðum
og hólum, en ofar taka við beyki- og greniskógar
og efst á hálsahryggjunum eru lynggrónir fornmanna-
haugar, tugum saman. Eftir flestum dölum renna ár eða
lækir og má nefna ýmsar allmiklar ár, sem sumstaðar
eru skipgengar fyrir smáskip, svo sem Vorsá, Sæbæj-
ará, Bangsbúá, Ellingá og Uggerbyá. I hinum
mörgu hæðum og dölum Vendilsýslu bjuggu á miðöldun-
3