Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Side 138
Georg Brandes, Michelangelo Buonarroti
138
Michelangelo var ættaður frá Flórens, og fæddur 6. mars
1475 í Caprese, þorpi skamt þaðan. Hann ólst upp í Flór-
ens. f>á voru listir og menning í
miklum uppgangi á Ítalíu, en þó
einkum í Flórens og Róm. Michel-
angelo lærði höggmyndalist í Flór-
ens. Lorenzo de Medici, er þá
var þar mestur höfðingi og lista-
vinur, tók snemma eftir gáfum
hans og ljet hann fá ágætan kenn-
ara Michelangelo stundaði nám
sitt af mesta kappi, og lagði í 12
ár stund á líkamsfræði; kom hon
um það að góðu haldi, eins og
listaverk hans bera vitni um, þvf
að enginn hefur kunnað betur en
hann að móta og mála allar vöðva-
hreyfingar. A þrítugs aldri vat ð
hann frægur maður. 26 ára hjó
hann út mynd af Davíð í mar-
mara, sem heimsfræg er og nú
stendur í Flórens. 1508 fekk
páfinn hann til að mála loftið £
Sixtinsku kapellunni í hinni miklu höll páfa, Vatikaninu,
og eru þau málveik hans hin frægustu málverk, sem til eru.
Mörgum árum síðar málaði hann dómsdag á altarisvegginn
£ kapellu þessari, stórfræga mynd, 60 feta á hæð.
Hjer er eigi rúm til að lýsa hinni ágætu bók Georgs Brandes,
en þess skal getið, að hann kveðst hafa verið hugfanginn af
Michelangelo frá æskuárum, og enginn hafi haft slík áhrif á
sig sem hann. 1860 keypti hann hina fyrstu ljósmynd af
teikningu eftir hann, og 1900 byrjaði hann að rannsaka hann
alvarlega. Minnist sá, er þetta ritar, að Georg Brandes sagði
í ræðu 1 samsæti, sem íslenskir námsmenn hjeldu honum 1905,
að hann legði þá mikla stund á Michelangelo og hefði lengi
gert það, og mintist nánar á hann.
Brandes lýsir greinilega æfi og verkum Michelangelos, og
Flórens og Róm á æfiárum hans, einkum listum, stjórnendum
og menningu í þeim bæjum. Hann lýsir Michelangelo bæði
sem myndhöggvara, málara, skáldi og húsgerðarmeistara,
Hann kemur mjög víða við, og lýsir þeim mönnum, sem
Michelangelo átti saman við að sælda; er t. a. m. einn kapí-
tulinn um Michelangelo og Rafael.