Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Page 57
Vendilsýsli
57
baögesti, svo sem Hóll (Höjen), Könnustaðir og
Tannishús við Tannisflóa. Mestöll vesturströndin frá
Skaga til Hirtsháls og meira að segja alla leið til
Blokhús er breið og sljett og þakin hvítum sandi, og
er því sælustaður fyrir sumarbaðgesti. í sumum sveitum,
er liggja þar að sjónum, svo sem í Ásdal, Skallerup
og Rubjerg- og Maarupsveitum, hefur sandfokið gert
ógurlegt tjón og eyðilagt bæi tugum saman, svo að hálf-
Um kvöldtíma við Lönstrup.
ar sveitirnar eyðilögðust á 17. og 18. öld. Á nokkrum
stöðum er ströndin hjer há og hólótt, einkum kringum
Rúbjerghöfða, sem er um 300 feta hár. Helstur bað-
staður á stöðvum þessum er Lönstrup, í djúpumog þröng-
um dal, og sjest bærinn ekki fyrr en kemur uppá dals-
brúnina. fað er sagt, að Lönstrup hafi verið eina þorp-
ið í Vendilsýslu, sem Thorsteinson hershöfðingi hafi ekki
hertekið vegna þess að Svíum tókst ekki að finna það.
Fyrir sunnan Lönstrup eru bæirnir Lökken og Blok-
hús, sem báðir eru kunnir baðstaðir.
Tvær mílur í suður frá Friðrikshöfn, á austurströnd
Vendilsýslu, er Sæbær (Sæby), svo sem áður er um-