Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 97
Mannfjelagssiðferði
97
rækilegt siðferði er myndugleika siðferði (autoritets-
moraí). Grundvöllurinn undir því er vilji guðs. En
hvernig fer um siðferðið, er menn hætta að trúa á guð.
í hinum stóru borgum verður að ganga út frá því, að
trúin sje ekki lifandi á heimilum mikils hluta manna. A
ófriðarárunum sýndi það sig hjá Pjóðverjum hvernig fer
um myndugleikasiðferðið, þá er myndugleikinn missir afl
sitt. Engin þjóð í Norðurálfunni var skylduræknari en
Pjóðverjar, skylduræknari gagnvart keisara og ríki; en
þá er myndugleikinn misti afl sitt, hvernig fór þá eigi
um skyldurnar og siðferðið.
Nútíðarþjóðfjelag þarfnast eigi að eins myndugleika-
siðferðis, heldur og skilnings á að siðferði sje
nauðsynlegt og gagnlegt fyrir þjóðfjelagið.
Pað þarf því bæði annan grundvöll fyrir siðferðið
en trúarbragðakensluna, og annað snið á það, því að
það er eigi fullnægjandi handa þjóðfjelagi eins og það er
orðið nú á tímum. Höfundurinn fer fleiri orðum um
þetta, en þess skal að eins getið hjer, að hann er alls
eigi á móti trúarbragðakenslu í skólum.
Pá minnist höfundurinn á lesbækurnar. Hann
hefur lesið margar af þeim; efnið í þeim er valið miklu
meira frá fagurfræðislegu sjónarmiði en siðferðislegu. Pó
er auðsætt, að menn hafa siðferðið fyrir augum við elnis-
valið, en það er að eins einstaklingssiðferðið, góðvild við
ættmenn og skepnur. í enskri lesbók las höfundurinn
sögu um timbursmíðasvein, sem af ómensku við vinnu
sína notaði fúinn timburstokk f skip eitt; af því leiddi
að skipið fórst á langri sjóferð og margir menn, sem
hann þekti ekki, biðu bana. Leskaflar, sem sýna áþreif-
anlega þá ábyrgð, sem menn bera gagnvart mannfje-
laginu, glæða ábyrgðartilfinninguna, og þess þarf með.
I reikningi er falið mikið siðferði, en hann er of-
lítið notaður til þess að glæða siðferðið. í reikningsbók-
7 •