Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 104
104
Mannfjelagssiðferði
urgjalds ofhlaða eftirtíð vora með skuldum og sköttumf
Petta málefni á að leggja fyrir hina sögulegu samvisku
þegar í skóla.
Pað mun styðja hina sögulegu samvisku, ef börnin
komast í skilning um það, að það sem verkamaður fær
fyrir vinnu sína — fyrir daglega vinnu eins manns alla
æfi — er eigi að eins vinna miljóna annara manna, held-
ur og árangur af vinnu öld eftir öld.
Að lokum skal minst á náttúrusöguna. Ef á að
innræta mönnum sanna skoðun á mannlífinu, verður að
sýna börnunum það í sambandi við allar námsgrein-
arnar.
Margir draga samlíkingar af jurta- og dýraríkinu til
þess að skilja hið mannlega fjelagslíf. En hjer ríður á
að vernda börnin gegn röngum samlíkingum, og að
bregða birtu með samlíkingum yfir hin rjettu hlutföll og
ástand.
Eins og kunnugt er, er fundið meira og meira að
hinu núverandi framfærsluskipulagi, sem vjer kennum við
einstaklingana eða auðkýfingana, o'g köllum *individnal-
isme« eða •í’þrivaikapiialisme«. Menn heimta að mann-
fjelagið sje birgt upp eftir fastákveðinni áætlun. Marga
dreymir um að koma á föstu framfærsluskipulagi í stað-
inn fyrir að nú er alt áætlunarlaust, og að ríki eða hrepp-
ur taki höfuðstólinn í sínar hendur og hafi eftirlit með
honum, vinnukraftinum og niðurjöfnun nauðsynjanna. Pá
hugsa þessir menn að ekki muni verða búið til óþarflega
mikið af neinni vörutegund og eigi heldur verði vöru-
skortur, nje miskunarlaus samkepni, sem eyðileggur mikið
verðmæti og veldur stórhruni, þá muni eigi komast á
samtök, sem noti illa vald, vinnu og auð til þess að
græða.
Ef menn nú aðgæta náttúruna, má sjá að skaparinn