Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1948, Side 176

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1948, Side 176
176 STEINGRÍMUR J. ÞORSTEINSSON Hann vann þarna að þýðingunni þrjá mánuði alls, en hvarf þá frá henni um sinn. A Islandi virðist hann hafa dvalizt rúm þrjú ár samfleytt að þessu sinni, unz hann fór aftur utan lil að halda áfram námi sínu haustið 1890. Þar átti hann á næsta ári hlut að stofnun Sunnanfara — þar sem hann birti allnokkur kvæði eftir sig — og 1892 gaf hann út ásamt Þorleifi H. Bjarnasyni hefti, sem Útsýn hét og hafði inni að halda þýðingar úr bókmenntum Bandaríkjanna. Þetta átti að vera upphaf tíma- rits, en framhald varð ekkert, enda luku ritstjórarnir báðir prófi þá um vorið, og Einar hélt heim til Héðinshöfða. Hefur það vafalaust verið eftir að þangað var komið, sem Einar tók aftur til við þýðinguna á Pétri Gaut, en 1892 kveðst hann hafa unnið að henni nær tveimur mánuðum og lokið við handritið ,,að nafninii til. En það var hvorttveggja, að ég hafði ekki tök á að kosta sjálfur útgáfu bókarinnar, enda likaði mér margt í þýðingunni miður vel, og varð ékkert úr því, að ritið kæmi út; og svo leið ár frá ári.“ Á Héðinshöfða lauk Einar við að ganga frá Úrvalsritum Sigurðar Breiðfjörðs haustið 1893, og voru þau prentuð í Kaupmannahöfn 1894. Það ár fluttist Einar um haustið suður til Reykjavíkur og hóf þar málaflutningsstörf, fór skyndiför til Englands 1895, stofnaði nýtt blað, Dagskrá, í Reykjavík sumarið 1896, og varð j)að fyrsta dagblað á Islandi sumarið 1897. Birti Einar þar m. a. nokkur kvæði. — Þetta sumar komu út Þyrnar Þorsteins Erlingssonar.1 Þeir Einar höfðu nokkurn veginn jafnsnemma vakið athygli á skáldgáfu sinni, einkum með kvæðum sínum í Sunnanfara. Og nú ætlaði Einar heldur en ekki að láta til sín taka um skáldskapinn. Þetta haust lætur hann hefja prentun á fyrstu bók sinni, Sögum og kvæðum, og ber hún ártalið 1897, þótt raunar kæmi hún ekki fyrir almennings sjónir fyrr en í aprílbyrjun 1898.2 Og sama haustið (1897) fór hann „að blaða í handritinu“ að Pétri Gaut „einn dag og tók ])á til að lagfæra á ýmsum stöðum |)að,“ sem honum „fannst lakast í fyrstu tilraun“ sinni. „Endirinn varð svo sá,“ segir Einar, „að ég réð af að láta nú verða alyöru úr því að koma ritinu út, og var þá prentuð fyrsta örkin, og hafði ég þá upp- lagið jafnstórt sem venja er til um samkyns bækur hér á landi. En áður en meira var prentað, sneri ég frá þessu og ásetti mér að gefa aðeins út örfá eintök“ vegna vænt- anlegrar sölutregðu, að j)ví er hann”sjálfur segir.3 Vegna ýmissa anna dróst sú prentun svo til 1901. En við skulum staldra um stund við prentun þá, sem byrjað var á haustið 1897. Einar segir, að ekki hafi þá verið prentuð nema fyrsta örkin, en í venjulegum ein- takafjölda. Hins vegar kveður Pétur Sigurðsson háskólaritari „fullvíst, að arkirnar voru fleiri; voru ])á prentaðar a. m. k. II arkir. En upplagið hefur verið eyðilagt, og eru þessar arkir afarfágætar nú“.4 Nánar kveður hann ekki á um þetta. En hann hefur hér rétt að mæla. Haustið 1896 hafði Einar fengið til landsins prentsmiðju til að prenta í henni 1) Sbr. vikublaðið ísland, 21. ágúst 1897. 2) Sbr. Nýju öldina, 9. og 23. apríl 1898, og ísland, 18. apríl sama ár. 3) Tilvitnanirnar í ummæli Einars eru úr formálanum að Pétri Gaut frá 1901. 4) Ljóðmæli Einars Benediktssonar, Rvk. 1945, III, 317.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.